Brassar fengu sjö stig í riðlinum og héldu hreinu í öllum þremur leikjunum sínum. Perúmenn þurfa hins vegar að bíða eftir úrslitum í hinum riðlunum til að vita hvort þeir komist í 8-liða úrslit.
Casemiro kom Brasilíu yfir á 12. mínútu. Sjö mínútum síðar skoraði Roberto Firmino annað mark Brassa sem var í skrautlegri kantinum.
Markvörður Perú, Pedro Gallese, skaut boltanum þá í Firmino og boltinn fór af honum og í slána. Liverpool-maðurinn fékk svo boltann aftur, lék á Gallese og skoraði af öryggi.
Á 32. mínútu skoraði Everton þriðja mark Brassa og fyrirliðinn Dani Alves gerði það fjórða á 53. mínútu. Hann rak þá smiðshöggið á frábæra sókn Brasilíu.
Á lokamínútunni bætti varamaðurinn Willian fimmta markinu við með frábæru skoti. Gabriel Jesus fékk gullið tækifæri til að skora sjötta mark Brassa í uppbótartíma en Gallese varði vítaspyrnu hans.
Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan.