Fótbolti

Í hvínandi gír í Noregi

Valur Páll Eiríksson skrifar
Diljá Ýr Zomers
Diljá Ýr Zomers

Landsliðskonan Diljá Ýr Zomers var í byrjunarliði Brann sem er að rúlla yfir norsku úrvalsdeildina í fótbolta. Liðið vann 4-1 sigur á Lilleström í dag.

Diljá spilaði fyrsta klukkutímann í leik dagsins og sigur dagsins var aldrei í hættu. Bandaríski framherjinn Brenna Lovera skoraði tvö marka Brann. Josefine Birkelund og Tomine Svendheim skoruðu hin tvö.

Brann er með fjögurra stiga forskot á Álasund sem er í öðru sæti deildarinnar. Liðið hefur verið með yfirburði í deildinni og hefur skorað 60 mörk en aðeins fengið á sig átta og er með langbestu markatöluna í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×