Fótbolti

Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn

Sindri Sverrisson skrifar
Freyr Alexandersson og lærisveinar hans hristu strax af sér vonbrigðin eftir bikartapið og ætla sér Evrópusæti í gegnum deildina.
Freyr Alexandersson og lærisveinar hans hristu strax af sér vonbrigðin eftir bikartapið og ætla sér Evrópusæti í gegnum deildina. Getty/Craig Foy

Eftir svekkjandi tap í bikarleik gegn HamKam hélt Rosenborg, undir stjórn Freys Alexanderssonar, flugi sínu áfram í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta og vann þar þriðja sigurinn í röð í dag.

Rosenborg vann Fredrikstad á útivelli, 3-0, og er nú með 43 stig í 4. sæti, jafnt Molde sem er í 3. sæti en á leik til góða.

Tvítugi Daninn Amin Chiakha hefur notið sín í botn undir stjórn Freys og hélt því áfram í dag þegar hann skoraði tvö mörk, fyrst á 45. mínútu og svo úr víti í lok leiks. Mads Bomholt skoraði einnig, á 67. mínútu.

Chiakha er nú markahæstur í deildinni með 17 mörk, tveimur mörkum á undan Peter Christiansen hjá Viking og fjórum á undan Andreas Helmersen hjá Bodö/Glimt.

Rosenborg á nú fimm leiki eftir á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×