Með lífsskoðunarfélag á lögmannsstofu sinni Kristinn Haukur Guðnason skrifar 25. júlí 2019 06:00 Páll Ágúst Ólafsson og Dögg Pálsdóttir. Fréttablaðið/GVA
Lífsskoðunarfélagið Vitund var skráð í febrúar og hefur aðeins þrjá meðlimi. Þrír lögmenn komu að skráningunni en þá greinir á um hver sinnir athöfnum, svo sem giftingum fyrir hönd félagsins. Lögmaðurinn og fyrrverandi sóknarprestur á Staðastað, Páll Ágúst Ólafsson, er forstöðumaður og stjórnarformaður lífsskoðunarfélagsins Vitundar sem skráð var hjá sýslumanni í febrúar. Aðeins þrír meðlimir eru skráðir í félagið en í stjórn félagsins sitja, ásamt Páli, móðir hans Dögg Pálsdóttir og Helga Baldvins Bjargardóttir. Öll eru þau lögmenn á lögmannsstofunni ÍsMál, þar sem heimilisfang Vitundar er einnig skráð. Þar er einnig skráð félagið Love Iceland sem sér um brúðkaupsþjónustu og er í eigu Karenar Lindar Ólafsdóttur, prests í Hjallakirkju og eiginkonu Páls Ágústs. Love Iceland er rétthafi að léninu vitund.is. Á þeirri síðu eru aðeins þrír pistlar, allir birtir í febrúar en á samfélagsmiðlum hafa verið reglulegar stöðuuppfærslur, sú fyrsta árið 2016. Á síðunni kemur fram að félagið sinnir athöfnum, svo sem giftingum. Páll Ágúst hefur verið mikið í fjölmiðlum undanfarna mánuði. Í embættistíð sinni á Staðastað flutti hann fjölskyldu sína af prestsetrinu þar sem hann taldi það óíbúðarhæft. Var embættið síðar lagt niður og átti Páll Ágúst í miklum málaferlum við biskup Íslands og þjóðkirkjuna sem hann vann. Fyrr í mánuðinum greindi Fréttablaðið frá því að Páll Ágúst hefði milligöngu um samskipti bandarískra kaupenda og þrotabús WOW air. Síðar hefur komið í ljós að athafnakonan Michele Ballarin fer fyrir kaupendahópnum. „Ég tók að mér sem lögmaður að hjálpa hópi fólks að koma þessu á laggirnar. Mitt hlutverk er einvörðungu lögfræðilegt,“ segir Páll Ágúst um Vitund og benti á að Helga gæti uppfrætt um félagið. Sagði hann jafnframt að þetta tengdist deilum hans við biskup ekki á nokkurn hátt. „Þetta er félagsskapur fólks sem hefur áhuga á að iðka mannréttindi,“ segir Helga. Vitund væri hópur fólks sem væri meðvitað um eigin forréttindi og jaðarstöðu annarra. Helga segir að félagið hafi séð um athafnir og að Páll Ágúst hafi mest megnis séð um þær hingað til. Páll segist hins vegar ekki sjá um athafnirnar. Samkvæmt reglugerð dómsmálaráðherra er lágmarksfjöldi trú- og lífsskoðunarfélaga 25. Helga segir að þau þrjú á lögmannsstofunni séu öll í félaginu en að fjöldinn sé meiri, nokkrir tugir. „Ætli ég sé ekki mesta virknin eins og stendur,“ segir Helga um virkni félagsins. Samkvæmt lögum eru skilyrði skráningar trú- og lífsskoðunarfélags að félagið hafi náð fótfestu, starfsemi þess sé virk og stöðug. Hvorki dómsmálaráðuneytið né sýslumaðurinn á Siglufirði, sem sér um trúfélagsskráningar, gátu svarað fyrirspurnum Fréttablaðsins um skráninguna vegna sumarleyfa.
Birtist í Fréttablaðinu Trúmál Tengdar fréttir Prestur á Staðastað og biskup deila enn Sóknarprestur á Staðastað sem gerður var að héraðspresti eftir deilur telur sig eiga að fá skipun til ársins 2022 en biskup hafnar því. Presturinn segir kirkjuna leyna gögnum um myglu. 26. september 2017 06:00 Framhaldið um WOW air líklega kynnt í þessari viku Isavia staðfesti í dag að fundur hefði verið haldinn fyrir helgi með kaupendum þrotabús WOW Air þar sem aðilar kynntu sig hvor fyrir öðrum. 22. júlí 2019 18:30 Samgöngustofa getur ekki sagt til um afgreiðslutíma á flugrekstrarleyfi fyrir WAB air Ekki er hægt að fullyrða hversu langan tíma tekur að fara yfir umsókn um flugrekstrarleyfi samkvæmt upplýsingum frá Samgöngustofu. Greint var frá því í gær að búið væri að sækja um flugrekstrarleyfi fyrir nýtt lággjaldaflugfélag sem ber vinnuheitið WAB air. 16. júlí 2019 12:00 Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira
Prestur á Staðastað og biskup deila enn Sóknarprestur á Staðastað sem gerður var að héraðspresti eftir deilur telur sig eiga að fá skipun til ársins 2022 en biskup hafnar því. Presturinn segir kirkjuna leyna gögnum um myglu. 26. september 2017 06:00
Framhaldið um WOW air líklega kynnt í þessari viku Isavia staðfesti í dag að fundur hefði verið haldinn fyrir helgi með kaupendum þrotabús WOW Air þar sem aðilar kynntu sig hvor fyrir öðrum. 22. júlí 2019 18:30
Samgöngustofa getur ekki sagt til um afgreiðslutíma á flugrekstrarleyfi fyrir WAB air Ekki er hægt að fullyrða hversu langan tíma tekur að fara yfir umsókn um flugrekstrarleyfi samkvæmt upplýsingum frá Samgöngustofu. Greint var frá því í gær að búið væri að sækja um flugrekstrarleyfi fyrir nýtt lággjaldaflugfélag sem ber vinnuheitið WAB air. 16. júlí 2019 12:00