„Erum með eitt af bestu liðunum í þessum aldursflokki“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. ágúst 2019 09:00 Íslenski hópurinn hefur náð góðum árangri á alþjóðlegum mótum. mynd/hsí
Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 19 ára og yngri fer til Norður-Makedóníu í dag þar sem heimsmeistaramótið fer fram. Fyrsti leikur Íslands á HM er gegn Túnis á þriðjudaginn. Flestir í hópnum voru í íslenska liðinu sem vann til silfurverðlauna á EM U-18 ára í Króatíu í fyrra. Haukur Þrastarson var valinn besti leikmaður EM í fyrra. Hann segir að íslenska liðið ætli sér stóra hluti á HM. „Við erum með frábært lið. Á þessum mótum höfum við sýnt að við erum með sterkan hóp og eitt af bestu liðunum í þessum aldursflokki. Ég er mjög bjartsýnn á að við getum gert góða hluti,“ sagði Haukur í samtali við Arnar Björnsson í Sportpakkanum í gær. Heimir Ríkharðsson er þjálfari liðsins og hefur verið lengi með þessa stráka sem eru fæddir 2000 og 2001. „Við ætlum að komast upp úr riðlinum og sjá hvert það leiðir okkur,“ sagði Heimir. „Markmiðið er að vera meðal átta efstu liða og klóra okkur hægt og rólega upp að toppnum.“ Auk Íslands og Túnis eru Þýskaland, Portúgal, Brasilía og Serbía í riðlinum. Fjögur efstu liðin komast áfram í 16-liða úrslit. Fréttina í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.Klippa: Ætla sér stóra hluti á HM U-19 ára
Handbolti Íslenski handboltinn Tengdar fréttir Haukur fer á HM U-19 ára Ísland er talið líklegt til afreka á HM U-19 ára í handbolta karla. 31. júlí 2019 10:42 Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn „Mér fannst við ekki góðir“ Íslenski boltinn Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Fótbolti Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn Íslenski boltinn „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Oliver til FH Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira
Haukur fer á HM U-19 ára Ísland er talið líklegt til afreka á HM U-19 ára í handbolta karla. 31. júlí 2019 10:42