Þjóðleikhúsið hvetur naggrísi af öllum kynjum til að sækja um Andri Eysteinsson skrifar 29. ágúst 2019 16:12 Mikilvægt er að naggrísinn sem verður fyrir valinu láti ekki frægðina stíga sér til höfuðs. Getty/Arterra
Leikverkið Shakespeare verður ástfanginn verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 4. október næstkomandi, þrátt fyrir að nokkuð skammt sé til frumsýningar hefur enn ekki verið ráðið í öll hlutverk. Greinilegt er að erfitt hefur verið að fá leikara í hlutverk gæludýrs John Webster því Þjóðleikhúsið neyddist í dag til þess að grípa til þess ráðs að auglýsa eftir leikara á Facebook. Í auglýsingunni segir að helsta hæfnikrafan sé sú að umsækjandi sé naggrís. „Um er að ræða lítið, raunar afar smátt, hlutverk í öllum skilningi, en til stendur að ráða naggrís í leikarahópinn,“ segir í auglýsingunni. Þá segir að verkefni og ábyrgð þess naggríss sem hneppir hnossið verði að fara með hlutverkið, mæta tímalega á æfingar og taka þátt í tilfallandi markaðsstarfi svo sem viðtölum við fjölmiðla. Naggrís sem eygir stóra drauma á stóra sviðinu og gælir við það að sækja um hlutverkið þarf, samkvæmt auglýsingunni að vera nákvæmur í starfi og að hafa gott vald á naggrísku. Naggrísinn þarf ekki að vera leikaramenntaður en reynsla og þekking á leikhúsi og sviðslistum er kostur. Naggrísir af öllum kynjum eru hvattir til þess að sækja um hlutverkið en frekari upplýsingar má sjá hér að neðan.
Dýr Leikhús Mest lesið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Bíó og sjónvarp Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Fleiri fréttir Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Sjá meira