Í bréfi sínu segir hann einlægt frá öllu ferlinu og hvaða tilfinningar hann upplifði varðandi það að kærasta hans væri að hitta aðra konu. Í lok bréfsins veltir hann fyrir sér þessum hugleiðingum, af hverju honum þótti það minna mál í byrjun að kærasta hans væri að hitta konu heldur en annan karlmann.
Í framhaldi velta Makamál því fyrir sér hvort að það sé samfélagslegra viðurkenndara (í gagnkynhneigðum samböndum) að kona „leiki“ sér með annari konu heldur en karlmaður öðrum karlmanni?
Við getum myndað okkur allskonar skoðanir út frá því hvað ætti að vera rétt hugsun og röklega sanngjörn en svo stjórnum við því ekki endilega hvaða tilfinningar við finnum. Ástæðurnar á bak við geta verið margvíslegar og flóknar hvort sem þær eru tengdar einhverjum samfélagslegum viðmiðum, líffræðilegum muni kynjanna eða einhverju öðru.
Makamál ítreka að hér er verið að tala um hugleiðingar en ekki staðreyndir.
Spurning vikunnar er að þessu sinni því tengd þessum hugleiðingum.
Ef haldið er framhjá þér, skiptir máli hvoru kyninu það er með?
Gerðar voru tvær kannanir til að sjá muninn á því hvernig kynin svara þessari spurningu og er fólk beðið um að hugsa sig vel um áður en það svarar. Ekki svara því sem þér finnst þú eigir að svara heldur reyndu að setja þig í þessi spor og svara út frá því hvaða tilfinningar þú heldur að þú munir finna.
Makamál benda á að hægt er að senda okkur ábendingar eða hugleiðingar á netfangið makamal@syn.is. Við tökum fagnandi á móti öllum reynslusögum og fullum trúnaði og nafnleynd heitið.
Ef þú ert kona, þá svarar þú þessari könnun: