Pence hafður að háði og spotti og hann atyrtur á samfélagsmiðlum Jakob Bjarnar skrifar 4. september 2019 12:17 Mike Pence fær það óþvegið víða á samfélagsmiðlum og er hann kallaður öllum illum nöfnum.
Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, sem kominn er til landsins til að hitta íslenskt mektarfólk og foringja, er umdeildur maður. Þó Hannes Hólmsteinn Gissurararson sé einn þeirra sem býður hann hjartanlega velkominn á sinni Facebooksíðu; „Ég er áreiðanlega ekki einn um að bjóða Pence, varaforseta Bandaríkjanna, hjartanlega velkominn,“ þá, jú… Hannes er í minnihluta því þeir eru talsvert fleiri sem vilja senda honum tóninn á en fagna.Þessi ömurlegi maður Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er ein þeirra sem ekki sparar stóru orðin í nýlegri færslu á Facebook. Henni þykir Pence óalandi og óferjandi: „Ég hvet fólk til að sýna hvorki skilning né þolinmæði vegna lokana, tafa eða annars uppnáms sem að koma Mike Pence, stríðæsingamanns og mannhatara veldur. Ég hvet fólk til að láta í heyra sér með öllum mögulegum hætti til þess að þessi ömurlegi maður og þær manneskjur sem í alvöru trúa því að ekkert skipti máli nema viðskiptahagsmunir, að ekkert skipti máli nema greddan í að græða fái í það minnsta skilaboð um að "gildismat" þeirra valdi viðbjóði og andstyggð hjá sæmilega normölu fólki.“ Þær eru sem sagt býsna kaldar kveðjur sem Pence fær frá verkalýðsforingjanum. Líklegt má teljast að þau hjá Bandaríska sendiráðinu, sem starfa við að þýða yfir á ensku svona það helsta sem sagt er um Bandaríkin og bandarísk yfirvöld og senda til frekari athugunar þar á bæ, munu þurfa að taka á honum stóra sínum þegar þau hafa þetta eftir í skýrslu.Ofstækis- og ofbeldismaður Gunnar Smári Egilsson, blaðamaður og stofnandi Sósíalistaflokks Íslands er skoðanabróðir Sólveigar Önnu, í þessu sem og mörgu öðru. Hann sendir Pence tóninn á sinni Facebooksíðu: „Má ég benda á hið augljósa; sjö klukkustunda hingaðkoma þessa ofstækismanns og boðbera andmannúðarstefnu og ofbeldis gagnvart minnihlutahópum og smærri þjóðum er ekki þess virði,“ segir Gunnar Smári. Og heldur áfram: „Segið honum að enginn sé heima og leyfið fólki að fara leiðar sinna í friði. Það er ekki bara að maðurinn hafi ekkert gott fram að færa (hann er í kompaníi með þeim sem eru að brjóta niður allt það skásta sem enn var til í Bandaríkjunum) heldur hefur hann aðeins illt fram að færa; vill kaupa stuðning veiklyndra stjórnvalda við illar ráðagerðir hættulegustu stjórnvalda í heiminum í dag. Pence er einn af þeim sem maður á að forðast að heilsa, alls ekki maður sem þú átt að bjóða heim til þín. Hver sem dregst inn í veröld hans mun skaðast.“Ætti kannski að sleppa því að koma í heimsókn Gunnar Smári lætur greinilega komu Pence trufla sig nokkuð því hann bætir við: „Ógleðisakstur hommahatarans fær fleiri götum lokað en gleðiganga hinsegin fólks. Hvað er það? Erum við komin þangað?“ Gunnar Smári og Sólveig Anna eru ekki þau einu sem hafa horn í síðu Pence. Þau virðast, ef litið er til viðbragða og annarra sem hafa tjáð sig, tala fyrir hönd margra. Guðmundur Andri Thorsson þingmaður Samfylkingar er rithöfundur og kann að gæta tungu sinnar. En ljóst má þó vera að honum er ekkert um manninn gefið og segir á sinni Facebook-síðu: „Maður sem ekki treystir sér til að heimsækja land án þess að þurfa að lýsa yfir neyðarástandi í því landi ætti kannski að sleppa heimsóknum til annarra landa.“ Guðmundur Andri hafði áður skrifað sérstakan pistil og tilefnið er koma Pence og segir hann varaforsetann öfgamann. Séra Bjarni Karlsson skrifar einnig pistil og leyfir sér að efast um að í brjósti hans spretti kristileg kærleiksblómin.Aðför gegn einkabílnum Egill Helgason sjónvarpsmaður er á svipuðum nótum og Guðmundur Andri og furðar sig á viðbúnaðinum: „Fjölda stórra gatna er lokað, er slík hætta á ferðinni eða er fyrst og fremst verið að sýna vald? Koma Merkel var öllu hógværari.“ Gylfi Magnússon hagfræðingur sér svo óvæntan flöt á heimsókn Pence: „Aðförin að einkabílnum fær óvæntan stuðning frá ríkisstjórn Bandaríkjanna.“Ah, the joy of receiving homophobe-in-chief. Welcome to Iceland, Mike Pence! Here is a photo from our wedding in 2014. We got married in a church by a feminist female priest - of course #blessPencepic.twitter.com/ksU9XDCdAn — Þorbjörg Þorvaldsdóttir (@torbjorg) September 3, 2019Þannig eru margir sem láta komu Pence fara í sínar fínustu. Boðað hefur verið til sérstakra mótmæla þar sem komu varaforsetans verður mótmælt. Partí gegn Pence. Þetta verður Austurvelli klukkan fimm og þar hafa tekið höndum saman ýmis samtök svo sem Samtök herstöðvarandstæðinga, Trans Íslands, Samtökin ´78 og Kvenréttindafélag Íslands svo fáein séu nefnd. Í fundarboði segir að að stefna hans misbjóði fjölmörgum Íslendingum.Meintum yfirhommahatara heilsað að hætti hússins Og þeir eru ýmsir sem eru í forsvari fyrir þessi samtök sem hafa minni en engan áhuga á að bjóða Pence velkominn. Á Twitter er Pence úthrópaður og þar tekur formaður Samtakanna ´78, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, til máls og hún vill storka varaforsetanum. Þorbjörg ávarpar hann beint og á ensku. Segir háðslega, í lauslegri þýðingu, að: Það sé sannur heiður að fá yfirhommahatarann í heimsókn. Velkominn. Hér er mynd frá brúðkaupi okkar árið 201 en það var femínískur kvenprestur sem gaf okkur saman – að sjálfsögðu. Fjölmargir gefa merki um að þeim þyki þetta verðug kveðja. Og þannig gengur það fyrir sig á Facebook og Twitter. Þar er fjör og víst að Pence telst seint aufúsugestur á mörgum bæjum á Íslandi.
Bandaríkin Heimsókn Mike Pence Utanríkismál Tengdar fréttir Vaktin: Íslandsheimsókn Mike Pence Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, er væntanlegur til landsins í dag ásamt eiginkonu sinni, Karen Pence. 4. september 2019 09:00 Búist við þungri umferð síðdegis í dag: „Biðjum fólk um að sýna því skilning“ Upplýsingar um götulokanir vegna heimsóknar Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna. 4. september 2019 12:15 Regnbogafánar í rigningu við Höfða Á meðan starfsfólk Höfða dregur íslenska og bandarískan fána að húni vegna komu Mike Pence má sjá regnbogafánann við hún við höfuðstöðvar Advania. 4. september 2019 12:09 Verður málverkið af Bjarna uppi á veggnum í Höfða? Það virðist sem það ráðist af því hvort það eru sjálfstæðismenn eða vinstri menn sem fari með völdin í borginni hvort málverkið er haft uppi á veggnum eða haft í lokaðri geymslu, hulið almenningi. 4. september 2019 12:12 Mest lesið Útlit fyrir mestu snjókomu í október í manna minnum Innlent Um 140 umsækjendur um alþjóðlega vernd týndir og eftirlýstir Innlent Erfitt að segja til um viðbrögð við nýjum faraldri miðað við Covid-viðbrögð Innlent Allt að þriggja tíma bið í dekkjaskipti Innlent Matarbankar segjast ekki munu anna eftirspurninni Erlent Komu innlyksa mæðginum til bjargar í Landmannalaugum Innlent Garðheimar ljósið í myrkrinu við meinta gímaldsgötu Innlent Aftökur á meintum smyglurum „ekki morð“ heldur „vörn við eitri“ Erlent Leit að flugvélinni horfnu engan árangur borið Erlent Gular viðvaranir vegna snjókomunnar suðvestantil Veður Fleiri fréttir Hófu ekki rannsókn á heimilisofbeldi fyrir misskilning Erfitt að segja til um viðbrögð við nýjum faraldri miðað við Covid-viðbrögð Allt að þriggja tíma bið í dekkjaskipti Komu innlyksa mæðginum til bjargar í Landmannalaugum Um 140 umsækjendur um alþjóðlega vernd týndir og eftirlýstir Garðheimar ljósið í myrkrinu við meinta gímaldsgötu Útlit fyrir mestu snjókomu í október í manna minnum Brennu–Njáls saga vekur alltaf lukku í Hvolsskóla Bresk freigáta í Akureyrarhöfn Beittur piparúða í fangaklefa, hótað með rafbyssu og sveltur Beittur piparúða, hótað með rafbyssu og sveltur í fangaklefa Sendiferðabíll í ljósum logum á Reykjanesbraut Íris segist ekki sækjast eftir sæti í Hafnarfirði Ástarbréf eru velkomin á héraðsskjalasöfn landsins Nafn mannsins sem lést vegna voðaskots Hinna látnu minnst í Flateyrarkirkju Sorg á Flateyri og rússnesk kjarnorkueldflaug Er enn að vinna úr því að hafa lifað Pirraðir læknar, efnahagurinn eftir áföll og húsnæði og lánakjör Reyndi að stinga af en endaði utan í vegriði Kynferðisbrotum sem leiða til greiðslu bóta hefur fjölgað verulega Fólk hafi dreymt um að eignast flugstjóradress Áhugasamir smalahundar á námskeiði Eldur í bíl á Seltjarnarnesi Meirihluti fólks geti ekki keypt íbúð í nýju lánakerfi sem sé að teiknast upp Nánast enginn fái að kaupa íbúð Lögregla veitti eftirför um miðborgina Kona handtekin grunuð um að stinga sambýlismann sinn „Túnin eru bara hvít“ Nýtt vopn í búri fjármálaráðherra Sjá meira
Vaktin: Íslandsheimsókn Mike Pence Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, er væntanlegur til landsins í dag ásamt eiginkonu sinni, Karen Pence. 4. september 2019 09:00
Búist við þungri umferð síðdegis í dag: „Biðjum fólk um að sýna því skilning“ Upplýsingar um götulokanir vegna heimsóknar Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna. 4. september 2019 12:15
Regnbogafánar í rigningu við Höfða Á meðan starfsfólk Höfða dregur íslenska og bandarískan fána að húni vegna komu Mike Pence má sjá regnbogafánann við hún við höfuðstöðvar Advania. 4. september 2019 12:09
Verður málverkið af Bjarna uppi á veggnum í Höfða? Það virðist sem það ráðist af því hvort það eru sjálfstæðismenn eða vinstri menn sem fari með völdin í borginni hvort málverkið er haft uppi á veggnum eða haft í lokaðri geymslu, hulið almenningi. 4. september 2019 12:12