En ætli fólk sé almennt óhrætt við að deila fantasíum sínum með makanum?
Þegar rætt er um kynlífsvanda eða sambandsvanda para er niðurstaðan oftast sú að grunnorsökin liggi í samskiptum. Fólk virðist hafa þá tilhneigingu í samböndum að hætta að tjá sig með tímanum og detti í þá gryfju að ætlast til þess að makinn eigi að vita hvernig þér líður eða hvað þú ert að hugsa.
Í kynlífi er þetta mjög algengt og samkvæmt kynfræðingum er helsta ástæða kynlífsvanda para, tjáningaleysi eða erfiðleikar með samskipti. Fólk er einfaldlega ekki að tala nóg um kynlíf, þarfir sínar og væntingar.
Hvað fantasíur varðar þá eru eðilega sumar fantasíur alltaf bara fantasíur en hver veit nema að makinn þinn deili sömu fantasíu og þú en þori ekki að tjá sig um það?
Og hver veit nema tal um fantasíur geti kveikt einhverja glóð eða opnað á eitthvað nýtt og spennandi?
Við vitum allavega ekki neitt fyrir víst nema að við tölum saman, en til þess verður auðvitað að vera traust. Fólk getur eðlilega orðið hrætt við viðbrögð makans þegar talað er um fantasíur og óttinn við það að samtalið geti haft slæm áhrif frekar en góð er líklega ein helsta orsök þess að fólk kýs að gera það ekki.
Spurning vikunnar er runnin út frá þessum pælingum og er beint að fólki sem er í sambandi.
Deilir þú kynferðislegum fantasíum með makanum?
Könnunin er skipt eftir kynjum. Svo að athugið að svara þeirri könnun sem á við þitt kyn.
KARLAR SVARA HÉR: