Keyrðu aftan á bíl, ollu fjögurra bíla slysi og hlupu á brott Samúel Karl Ólason skrifar 19. október 2019 07:56 Vísir/Vilhelm
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynningu um fjögurra bíla slys á Reykjanesbraut. Ökumaður bílsins sem ók fyrst aftan á annan bíl, og farþegi, hlupu á brott. Sá sem ekið var á fann til eymsla í fótum og höfði og skemmdist einn ljósastaur. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu og virðist sem að lögreglan hafi átt í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Seint í nótt ók ökumaður bíl sínum inn í garð í Kópavogi en sá er grunaður um ölvunarakstur. Þó nokkrir slíkir voru stöðvaðir auk annarra sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá var einn ökumaður stöðvaður á Eiríksgötu í nótt sem grunaður er fyrir akstur undir áhrifum bæði fíkniefna og áfengis. Þar að auki hefur hann ítrekað verið stöðvaður fyrir akstur þó hann hafi verið sviptur ökuréttindum. Tveir menn voru handteknir í miðbænum á sjötta tímanum í gær vegna ölvunar og ónæðis. Annar var með hótanir og ofbeldi við lögreglumenn. Hinn var til vandræða við fyrirtæki í Ánanaust er grunaður um eignaspjöll, hótanir og fleira. Þá þurfti að hafa afskipti af tveimur öðrum ölvuðum mönnum á tjaldsvæði í Laugardal skömmu seinna. Þeir voru með ógnandi hegðun og til vandræða, samkvæmt dagbók lögreglu. Seinna um kvöldið þurfti aftur að hafa afskipti af þeim og var annar þeirra handtekinn vegna gruns um eignaspjöll. Skömmu fyrir fjögur í nótt var maður handtekinn fyrir líkamsárás í miðbænum. Sá mun ekki hafa farið að fyrirmælum lögreglu og reyndi að tálma störf lögregluþjóna. Um fimm leytið barst tilkynning um innbrot í fyrirtæki við Skólavörðustíg. Þar var maður handtekinn á vettvangi.
Lögreglumál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira