Unnur Tara: Allt þetta mál er fáránlegt Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 17. október 2019 19:58
Furðuleg uppákoma átti sér stað í leik KR og Vals í Dominos deild kvenna í körfubolta í gærkvöldi. Leikmaður KR sem einnig er læknir fékk tæknivíti fyrir að vilja aðstoða liðsfélaga sem meiddist. Unnur Tara Jónsdóttir var á bekknum þegar Sóllilja meiddist eftir baráttu við Helenu Sverrisdóttur. Sjúkráþjálfarar beggja liða voru fljótir á vettvang en Unnur Tara vildi fara inn á til þess að veita aðstoð sína. Hún sagðist fyrst hafa farið að ritaraborðinu og athugað hvort það væri eftirlitsdómari þar því þeir hleypa henni stundum beint inn á. Svo var ekki og því fór hún til eins dómara leiksins og bað um að fara inn á. Hann leyfði það ekki, svo hún ætlaði að leita til annars dómara en fékk þá tæknivillu. „Ég hef ekki heyrt orð frá neinum frá KKÍ eða neinum dómara,“ sagði Unnur Tara í kvöldfréttum Stöðvar 2 aðspurð að því hver viðbrögðin hefðu verið í dag. „Mér finnst þetta allt mál vera bara fáránlegt. Samkvæmt FIBA reglum þá þarf ég ekki einu sinni að biðja um leyfi en af kurteysissökum þá geri ég það alltaf.“ Þess má geta að KKÍ sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem dómarinn og dómaranefndin viðurkennir að um mistök hafi verið að ræða.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Fleiri fréttir ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Sjá meira