Innlent

Birtingur og Blaðamannafélagið undirrita samning

Jakob Bjarnar skrifar
Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands er ánægður með samningaviðræðurnar við Birting.
Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands er ánægður með samningaviðræðurnar við Birting. visir/vilhelm
Tekist hafa samningar milli Blaðamannafélags Íslands og útgáfufélagsins Birtings, en það stendur utan Samtaka atvinnulífsins.

Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands segist gríðarlega ánægður með að nást hafi samningar við Birting og bindur vonir við að samningar náist á næstu dögum við aðra smærri miðla.

Tók viku að semja

Þessar tilteknu samningaviðræður tóku viku en samningar við SA hafa hins vegar staðið nú í sjö mánuði, samningar blaðamanna á miðlum sem eiga aðild að SA hafa verið lausir frá áramótum.

„Það skiptir höfuðmáli í þeirri erfiðu stöðu sem fjölmiðlar eru í, að taka höndum saman, sækja fram, og nýta þau tækifæri sem fyrir hendi eru. Til þess þarf að sýna frumkvæði og hugrekki og verja lágmarkskjör. Það hefur tekist með þessum samningi að mínu mati og á Birtingur heiður skilinn að eiga þar hlut að máli,“ segir Hjálmar. Hann segir þörf á meiri hækkunum en þetta sé mikilvægt skref til að snúa vörn í sókn en blaðamenn eru afar ósáttir við laun sín sem hafa dregist verulega saman á undanförnum árum og reyndar áratugum.

Nýi kjarasamningurinn verður birtur þegar hann hefur verið kynntur og afgreiddur af þeim blaðamönnum sem hann tekur til. Birtingur er í eigu fjárfestingarfélagsins Dals sem er að hundrað prósentum í eigu Halldórs Kristmannssonar.

 

Ný launatafla og grunnkaupshækkanir

Nýi samningurinn var undirritaður nú í hádeginu með fyrirvara um samþykki samninganefndar BÍ og félagsmanna BÍ á Birtingi og stjórnar Birtings. Kynning og atkvæðagreiðsla um samninginn fer fram á morgun en hann gildir í þrjú ár eða til 1. nóvember 2022. Samningurinn felur meðal annars í sér gildistöku nýrrar launatöflu, grunnkaupshækkanir, hækkun á endurgreiddum kostnaði, endurskoðun á vaktaálagi og gildistöku á samningi um framsal á höfundarrétti, auk fleiri smærri atriða. Samningurinn er vel innan þeirrar launastefnu sem mótuð hefur verið á árinu á almennum vinnumarkaði.

Útgáfufélagið Birtingur gefur út tímaritin Gestgjafann, Vikuna og Hús og Híbýli og dagblaðið Mannlíf og er stór vinnustaður blaðamanna.

Eins og fram hefur komið hafa blaðamenn stærri miðla boðað til verkfallsaðgerða. Samningafundur hefur verið boðaður hjá ríkissáttasemjara á morgun klukkan 10.30 með Blaðamannafélaginu og þeim miðlum sem eru innan Samtaka atvinnulífsins.

Fyrirvari: Blaðamenn Vísis eru í Blaðamannafélagi Íslands.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×