Fjölmiðlar

Fréttamynd

Rósa vill leggja fjölmiðla­nefnd niður

Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins lagði það til í ræðu á þingi fyrr í dag að fjölmiðlanefnd verði lögð niður. Hún sagði löngu tímabært að Logi Einarsson nýsköpunar- og háskólaráðherra svari því hvers vegna brýnt þyki að ríkið haldi nefndinni úti.

Innlent
Fréttamynd

Ólga vegna brott­hvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond á­kvörðun“

Ákvörðun um að taka þátt Sölku Sólar Eyfeld af dagskrá Rásar 2 hefur vakið hörð viðbrögð hlustenda og hollvina Ríkisútvarpsins. Fjölmargir kalla eftir skýringum á málinu og vilja að ákvörðuninni verði snúið við. Útvarpsmaðurinn Óli Palli segir fólk og þætti koma og fara á Ríkisútvarpinu og dagskrárstjóri Rásar 2 segir ákvörðunina hluta af viðameiri dagskrárbreytingum.

Lífið
Fréttamynd

Minnast Davíðs: Hug­rakkur, hnyttinn og stór í sniðum

Landsmenn vöknuðu flestir við þau tíðindi að einn áhrifamesti stjórnmálamaður sögunnar er fallinn frá. Sífellt fjölgar í hópi þeirra sem minnast Davíðs á samfélagsmiðlum og koma kveðjur úr öllum áttum; bæði þeirri hægri og vinstri en líka frá samfélagi samkynhneigðra.

Lífið
Fréttamynd

Davíð Odds­son er látinn

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og einn áhrifamesti stjórnmálamaður lýðveldistímans, er látinn. Hann lést á heimili sínu í Skerjafirði í gær. Davíð var 78 ára að aldri.

Innlent
Fréttamynd

Salka Sól látin fara

Sölku Sól hefur verið gert að hætta með útvarpsþættina sína á Rás 2 eftir um sex ára skeið. Síðasta þættinum var útvarpað í morgun.

Lífið
Fréttamynd

Sýn skilaði hagnaði á fjórða árs­fjórðungi

Sýn hf. skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Forstjóri segir árið umbreytingaár og það marki ákveðin tímamót í kjölfar ákvarðana sem renna eigi styrkari stoðum undir reksturinn. Aðgerðir stjórnenda séu að skila árangri, þrátt fyrir erfiðar aðstæður, en heilt yfir síðasta ár tapaði félagið 634 milljónum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Segir upp­spuna að Mogginn sé að hætta að koma út á prenti

Sigurbjörn Magnússon formaður stjórnar Árvakurs, sem gefur út Morgunblaðið, hló þegar undir hann voru bornar kenningar sem viðraðar voru í „Orðinu á götunni“ á DV og Eyjunni þess efnis að til stæði að Morgunblaðið kæmi aðeins út í vefútgáfu og hætt verði að prenta blaðið.

Innlent
Fréttamynd

Colbert bannað að birta við­tal við Demó­krata

Stephen Colbert, sem stýrir þættinum Late Show á CBS í Bandaríkjunum, var meinað að birta viðtal við James Talarico, þingmann Demókrataflokksins á ríkisþingi Texas. Það voru lögmenn CBS sem bönnuðu birtingu myndbandsins, á grunni væntanlegra nýrra viðmiða frá Fjarskiptastofnun Bandaríkjanna (FCC) um suma spjallþætti.

Erlent
Fréttamynd

Þóra og Eva sam­einaðar á ný í Efsta­leitinu

Þóra Björg Clausen, fyrrverandi dagskrárstjóri Stöðvar 2, hefur tekið við stöðu aðstoðardagskrárstjóra hjá Ríkisútvarpinu. Þar mun hún aftur starfa með Evu Georgs Ásudóttur, dagskrárstjóra Ríkisútvarpsins, en þær unnu áður saman hjá Stöð 2.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Segja gögn um verk­taka­greiðslur tekin úr sam­hengi

Samskiptastjóri Háskólans á Bifröst segir í yfirlýsingu frá skólanum að verktakagreiðslur til fastráðinna starfsmanna eigi sér ekki stað við háskólann. Skólinn harmar að einstaka starfsmenn séu nafngreindir í umfjöllun RÚV um verktakagreiðslur og segir gögn tekin úr samhengi.

Innlent
Fréttamynd

Net­miðlar myndu flestir liggja niðri á Ís­landi

Flestir íslenskir netmiðlar myndu liggja niðri ef sambandið myndi rofna við útlönd, en þó ekki Vísir að sögn sérfræðings. Hann segir það koma mörgum á óvart hve bjargarlausir Íslendingar verða þegar netsamband rofnar með þessum hætti, málið snúist um stafrænt fullveldi.

Innlent
Fréttamynd

Alaska og Birnir sigur­sæl

Tónlistarverðlaun Reykjavík Grapevine voru haldin á skemmtistaðnum Lemmy í gærkvöldi og var hiphop-senan sigursæl. Alaska1867 var valin listamaður ársin, Dyrnar eftir Birni var valin plata ársins og „eh plan“ með Digital Ísland valið lag ársins.

Menning
Fréttamynd

Úr fjöl­miðlum í dýraverndarmál

Dýraverndarsamband Íslands hefur ráðið Margréti Marteinsdóttur, fyrrverandi fjölmiðlakonu, sem fulltrúa sinn. Ráðning hennar er sögð eiga að efla frekar baráttu fyrir velferð dýra á landinu.

Innlent
Fréttamynd

Átta mínútur sem stýra RÚV

Ríkisútvarpið gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi. Það er fjölmiðill í almannaþágu, fjármagnaður með ríkisframlagi og ætlað að þjóna lýðræði, menningu og íslenskri tungu.

Skoðun
Fréttamynd

X-ið bætir við sig Bolla

Útvarpsmaðurinn og grínistinn Bolli Már Bjarnason hefur hafið störf á X977 og verður þar í loftinu alla virka daga milli 12 og 16. Hann var í útvarpsþættinum Ísland vaknar á K100 frá 2024 til ársloka 2025.

Lífið
Fréttamynd

Kári Stefáns­son for­dæmir vinnu­brögð Moggans

Kári Stefánsson, fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir þá fugla versta sem skíta í eigin hreiður. Hann er afar ósáttur við að því sé slegið upp að nafn hans hafi verið að finna í Epstein-skjölunum.

Innlent
Fréttamynd

Hvað er eigin­lega málið með Mál málanna?

Fréttirnar dynja á okkur úr öllum áttum en í amstri dagsins er oft erfitt að greina samhengi þeirra og fá yfirsýn yfir það sem skiptir mestu máli. Hlaðvarpið Mál málanna tekur saman heitustu málin og setur þau fram á mannamáli.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð

Auglýsingastjóri RÚV segir það af og frá að Ríkisútvarpið stórgræði á auglýsingasölu á leikjum íslenska handboltalandsliðsins á Evrópumótinu. Auknar auglýsingatekjur vegna góðs gengis strákanna okkar nemi ekki nema fáeinum prósentum á milli móta og hluti teknanna skili sér sömuleiðis til Handknattleikssambandsins.

Innlent
Fréttamynd

Rann­sókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fellt niður rannsókn vegna kæru FRÍSK - Félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði á hendur ætluðum eigendum ólöglegu deilisíðunnar Deildu.net. Eitt og hálft ár leið frá kæru þar til að rannsókn hófst og átta ár þar til að ætlaður eigandi var yfirheyrður.

Innlent
Fréttamynd

Frá­bært ár að baki hjá Bylgjunni

Þegar rafrænar ljósvakamælingar Gallup fyrir árið 2025 eru skoðaðar sést að Bylgjan á 45 af 50 mest hlustuðu klukkustundum ársins í útvarpi í aldursflokknum 12-80 ára. Bylgjan á auk þess 58 af 60 mest hlustuðu klukkustundunum í aldursflokknum 18-49 ára.

Samstarf
Fréttamynd

Gæti vaknað einn daginn og ætlað á þing

Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður útilokar ekki að hann muni einn daginn skella sér í stjórnmálin og fara í framboð. Myndi hann skipta um starfsvettvang eða færa sig um set gæti valið þó einnig verið allt annað en pólitíkin. Hann myndi til að mynda hafa áhuga á að gerast rithöfundur í franskri sveit.

Lífið