„Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Freyja Þórisdóttir skrifar 12. október 2026 23:47 Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir ritstjóri Gestgjafans segir formann Blaðamannafélags Íslands ekki nógu vel að sér þegar komi að innihaldi Gestgjafans enda sér þar að finna margt annað en uppskriftir. Vísir/Anton Brink Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir ritstjóri Gestgjafans gefur heldur lítið fyrir ummæli nöfnu sinnar Sigríðar Daggar Auðunsdóttur formanns Blaðamannafélags Íslands í nýlegu viðtali þar sem hún minntist á blaðið. Í innsendri grein sem ber fyrirsögnina „Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei“ segist Sigríður Dagný ekki átta sig á því hvaða mælikvarða formaðurinn noti þegar hún raði eigin félagsmönnum í flokka.
Tilefni innsendu greinarinnar er viðtal þar sem rætt var við formann Blaðamannafélags Íslands í einum þátta blaðamannsins Jakobs Bjarnars á Vísi sem bera heitið Í bóli Bjarnars sem birtist þann 4. október. Sigríður Dagný segist hafa staldrað þar við ákveðin ummæli formannsins. Mestmegnis miðlun á uppskriftum „Hlaðvörp eru bara fjölmiðlunarleið, miðlunarleið, það er fjölmiðill. Alveg eins og Gestgjafinn, tökum sem dæmi, miðlar uppskriftum. Jú, jú, þar eru einhverjar greinar sem blaðamenn vinna en mestmegnis er þetta miðlun á uppskriftum. Við höfum aldrei dregið í efa að Gestgjafinn sé fjölmiðill. Ef Gestgjafinn væri með hlaðvarp sem myndi fjalla um uppskriftir, væri það þá ekki fjölmiðill?,“ var meðal þess sem Sigríður Dögg kom inn á í viðtalinu. Það er önnur setningin í efnisgreininni sem skýtur skökku við að mati Sigríðar Dagnýjar. Í grein sinni minnist hún á það að í viðtalinu hafi formaðurinn sagt fréttamennsku vera eina tegund af blaðamennsku. Meðal þeirra sem hún teldi til blaðamennsku væri fjöldi áhrifavalda. „Áhrifavaldur getur sem sagt verið blaðamaður. Blaðamaður á ritstjórn Gestgjafans, sem greiðir félagsgjöld til BÍ og starfar eftir siðareglum félagsins, skrifar hins vegar „einhverjar greinar“ innan um uppskriftir,“ skrifar Sigríður Dagný. Hún átti sig ekki á því hvaða mælikvarða formaðurinn noti. Þeir sem skrifi til að mynda um stýrivexti virðist efstir í flokki en þeir sem skrifi um mat í öðrum. „Hvar lenda þá íþróttafréttamenn, menningarblaðamenn eða þeir sem skrifa um heilsu og ferðalög? Stéttarfélag á að standa með öllum sínum félagsmönnum, ekki raða þeim upp eftir því hversu merkilegt viðfangsefnið þykir,“ skrifar hún jafnframt. Ekki skrítið að nefndin geri eins Tímasetningin sé ekki til að bæta úr skák: Úthlutunarnefnd stuðnings við einkarekna fjölmiðla hafi í frummati komist að því að efni Vikunnar og Húsa og híbýla, systurblaða Gestgjafans, teljist ekki til frétta. „Formaðurinn segir sjálf í viðtalinu að héraðsmiðlar „sem stunda alvöru blaðamennsku“ þurfi stuðning og að gerð sé krafa til þess,“ skrifar Sigríður Dagný. Þegar formaður blaðamanna talar um alvöru blaðamennsku og gerir lítið úr tímaritunum er ekki skrýtið að nefndin dragi sömu línu. Hún hvetur þá formann til þess að fletta blaðinu, þar sé að finna viðtöl við matreiðslumenn, bændur og framleiðendur, umfjöllun um veitingastaði og fólkið sem reki þá, um nýsköpun í matargerð, ræktun, matarmenningu og ferðalög. „Þegar Morgunblaðið eða Vísir skrifa um mat og landbúnað kallast það blaðamennska,“ skrifar hún og ítrekar: „Ég sé ekki af hverju það breytist þegar sérhæft tímarit gerir það betur.“ Ummælin sýni að hennar mati lítinn skilning á því að fjölmiðlar séu reknir, einkareknir fjölmiðlar lifi á áskrifendum og auglýsingum. Hún nefnir að vissulega hafi formaðurinn rétt fyrir sér varðandi það að blaðamennska sé ekki ókeypis. Viðtal Jakobs við Sigríði Dögg er að finna í spilaranum hér fyrir ofan. Ekki rétt að skráning sé frí Þá tekur hún sem dæmi að formaðurinn hafi sagt það mistök hjá Sýn að leggja kvöldfréttir niður og að gildi fréttanna verði ekki metið í „einhverjum debet- og kreditdálkum“. „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki. Þegar fréttatími stendur ekki undir sér þarf eitthvað annað að borga fyrir hann, og hjá einkareknum miðlum er það efnið sem fólk sækir í og auglýsendur vilja vera nálægt,“ segir Sigríður Dagný og snýr sér því næst að kostnaðinum sem fylgi því að skrá sig sem fjölmiðla. Formaður hafði sagt í viðtalinu að fréttahlaðvörp væru mjög góð viðbót inn á svið blaðamennsku en að hún skildi ekki af hverju fólk flækti það svona að skrá hlaðvörp sem fjölmiðla og að „það kostar ekki einu sinni neitt að skrá sig sem fjölmiðil.“ Þarna er nafna hennar ósammála og segir einfaldlega að staðhæfingin sé ekki rétt. „Skráningu fylgja skyldur samkvæmt fjölmiðlalögum: að tilkynna ábyrgðarmann, eignarhald og ritstjórnarstefnu, tilkynna sölu á hlut innan tveggja virkra daga, skila árlegri skýrslu til fjölmiðlanefndar, setja reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði og svara fyrirspurnum nefndarinnar,“ skrifar hún. Við hjá Birtíngi gerum þetta ár eftir ár. Loks segist hún sammála formanninum er hún segir nefndina hafa farið út fyrir sitt verksvið þegar hún hafi farið að meta hvernig fjölmiðlar fjalli um mál. Hún hafi líka sagt að það sem skipti mestu máli sé tilgangurinn með því sem miðlað er og að unnið sé eftir siðareglum. „Blaðamannafélagið berst fyrir öflugri fjölmiðlun, segir formaðurinn. Það gerum við líka. Öflug fjölmiðlun er fjölbreytt og blaðamennirnir sem skrifa um mat, hönnun og mannlíf eiga heima í þeirri baráttu. Ég vona að félagið þeirra standi með þeim.“
Fjölmiðlar Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Tengdar fréttir Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Birtíngur hefur krafist þess að úthlutunarnefnd um stuðning við einkarekna fjölmiðla endurskoði frummmat sitt eftir að nefndin komst að þeirri niðurstöðu að útgáfufélagið uppfylli ekki skilyrði fyrir rekstrarstuðningi vegna ársins 2025. Vísað er til þess að efni sem birt er í Vikunni og Húsum og híbýlum sé samfélagslegt efni frekar en fréttir eða fréttatengt efni. Birtíngur hefur skilað andmælum vegna málsins. 7. október 2026 14:18 Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands. Hún mæðist í mörgu sem slík og ræðir meðal annars skilgreiningarvanda blaðamennskunnar, fjölmiðlalæsi, skilningsleysi á faginu sem teygir sig alla leið upp í dómstóla og segir frá erfiðasta atviki sem hún hefur þurft að takast á við sem formaður. 4. október 2026 10:00 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira
Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Birtíngur hefur krafist þess að úthlutunarnefnd um stuðning við einkarekna fjölmiðla endurskoði frummmat sitt eftir að nefndin komst að þeirri niðurstöðu að útgáfufélagið uppfylli ekki skilyrði fyrir rekstrarstuðningi vegna ársins 2025. Vísað er til þess að efni sem birt er í Vikunni og Húsum og híbýlum sé samfélagslegt efni frekar en fréttir eða fréttatengt efni. Birtíngur hefur skilað andmælum vegna málsins. 7. október 2026 14:18
Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands. Hún mæðist í mörgu sem slík og ræðir meðal annars skilgreiningarvanda blaðamennskunnar, fjölmiðlalæsi, skilningsleysi á faginu sem teygir sig alla leið upp í dómstóla og segir frá erfiðasta atviki sem hún hefur þurft að takast á við sem formaður. 4. október 2026 10:00