Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Einhverjir ráku eflaust upp stór augu á dögunum þegar við þeim blöstu staflar af jólapiparkökukössum en þeir fóru að birtast í Bónus-verslunum þann 1. september. Framkvæmdastjórinn segir söluna hafna fyrr en tíðkast hefur en það sé tilkomið vegna mikillar eftirspurnar. Neytendur 5.9.2026 15:06
Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Línu Björgu Tryggvadóttur brá verulega í gærkvöldi þegar hún beit óvænt í glerbrot þegar hún var að borða beyglu. Hún segir að ónotatilfinning hafi gripið um sig eftir að hún áttaði sig á því að hún hefði kyngt glerbroti. Hún hafi verið heillengi að veiða glerbrot úr kjaftinum. Neytendur 5.9.2026 13:18
Sveru dósirnar snúa aftur Nú er hægt að kaupa Kristal, Pepsi Max og Appelsín í gömlu sveru dósunum sjö árum eftir breytingu. Framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar segir breytinguna þó eingöngu tímabundna og að hoj og slank dósirnar muni snúa aftur innan skamms. Neytendur 3.9.2026 11:05
Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Lægsta verðið á matvöru er enn að finna í Prís samkvæmt úttekt Verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var dagana 10. til 14. ágúst. Þegar verð voru borin saman í lágvöruverslununum: Bónus, Krónunni, Nettó og Prís var lægsta verðið oftast að finna í Prís. Neytendur 21.8.2026 14:34
Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Kortavelta Íslendinga jókst lítillega í júlí. Íslendingar eyddu minna innanlands en aldrei hefur hærra hlutfall af kortaveltu landsmanna farið fram erlendis. Neytendur 18.8.2026 12:18
Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Mest nýtta leið Strætó á höfuðborgarsvæðinu er leið 1 en nú hefur þremur aukavögnum verið bætt við hana alla virka morgna og er það gert til þess að auka þjónustu í takt við þyngri umferð í upphafi hausts. Leið eitt liggur frá Skarðshlíð í Hafnarfirði, í gegnum Vellina, norður í gegnum Garðabæ og Kópavog og þaðan áleiðis niður í miðbæ Reykjavíkur með lokastoppistöð við Skúlagötu. Neytendur 17.8.2026 21:23
Ástandið minni á 2007 Hagfræðingurinn Már Wolfgang Mixa segir raunstýrivexti ekki hafa verið hærri síðan rétt fyrir bankahrun. Verktakar gætu neyðst til að gefa verulega afslætti til þess að losa sig við nýjar íbúðir, sem hrannist upp. Már telur „galið“ að eltast við 2,5 prósenta verðbólguviðmið Seðlabankans. Ríkið ætti að taka virkari þátt í að viðhalda efnahagslegum stöðugleika. Neytendur 17.8.2026 20:49
Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Lindabakarí ehf. innkallar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, (HEF) Euro Market brauð en aðskotahlutur úr málmi fannst í einu brauði af umræddri framleiðslu. Neytendur 17.8.2026 12:13
Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Ein lota af frosnum hindberjum frá Grön balance hefur verið innkölluð vegna mögulegra skordýra í vörunni. Hindberin voru til sölu í Krónunni. Neytendur 14.8.2026 14:35
Kalla inn pylsur vegna prentvillu Kjarnafæði Norðlenska, í samráði við Krónuna og Matvælastofnun, kalla inn pylsur merktar Krónunni í tíu stykkja umbúðum. Ástæða innköllunar er ótilgreindur ofnæmisvaldur vegna prentvillu. Neytendur 13.8.2026 16:24
Breytingar á fyrsta farrými Icelandair kynnir í dag fyrsta skrefið í breytingum á Saga Premium. Í tilkynningu segir að það sé betra farrými fremst í flugvélum félagsins. Nú er þá hægt að velja sér um fimm fargjaldaflokka ætli maður að fljúga með Icelandair. Neytendur 10.8.2026 11:45
Innkalla te sem innihélt ál Mikið magn af áli mældist í tei og hefur það verið innkallað af Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. Varan sem um ræðir heitir SHAN WAI SHAN matcha green tea, og var flutt til landsins af Kina Panda ehf. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja innkallað vöruna. Neytendur 6.8.2026 15:23
Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna segir bílastæðafyrirtæki sum „síbrotafyrirtæki“. Þó svo að hann sé ánægður með nýlega sekt Neytendastofu telur hann þurfa að stíga fastar niður. Það eigi að vera skýrt hver kostnaður er við að leggja á bílastæði áður en fólk leggur. Rætt var við Breka í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Neytendur 6.8.2026 08:43
Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendastofa hefur sektað bílastæðafyrirtækin Parka Lausnir ehf. og EasyPark Ísland ehf. um hundruð þúsunda fyrir að tilgreina ekki kostnað á gjaldsvæðum nægilega vel. Neytendur 4.8.2026 13:01
Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Flugfélagið EasyJet segir engar líkur á því að átt hafi verið viljandi við töskumátara sem notaður eru til að athuga hvort handfarangurstöskur rúmi innan stærðartakmarkana á Gatwick-flugvelli í Lundúnum. Neytendur 2.8.2026 15:42
Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Akureyringur gafst ekki upp eftir að hafa talið flugfélagið easyJet hafa svínað á sér og rukkað vegna handfarangurstaskna sem virkuðu of stórar. Hann taldi brögð í tafli og eftir heilmikla þrautargöngu hafði hann að lokum óvæntan sigur. Neytendur 28.7.2026 16:55
Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Viðbragðsaðilar og fjarskiptafélög hafa lagst á eitt til þess að styrkja fjarskiptakerfið á Íslandi í kringum almyrkva á sólu. Þá hefur Neyðarlínan einnig gefið út varanúmer sem hægt er að hringja í ef ekki næst samband við 112. Neytendur 24.7.2026 13:12
Arion banki hækkar gjöld Arion banki hefur tilkynnt um breytta verðskrá fyrir einstaklingsþjónustu bankans, sem tekur gildi þann 23. september. Flest gjöld hækka um þrjú til fimm prósent. Neytendur 24.7.2026 12:17
Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki „Ef markmiðið með forsenduákvæðinu var að tryggja kaupmátt þá held ég að allt bendi til þess að það hafi gengið eftir,“ segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Neytendur 23.7.2026 13:28
Kalla inn fæðubótarefni Heilsubúðin og Heildsalan Mamma veit best ehf. hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes, ákveðið að innkalla fæðubótarefnið Liposomal NMN frá Codeage. Neytendur 21.7.2026 12:52
Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Ísband hefur sent HMS tilkynningu um innköllun á tveimur tegundum Jeep tengiltvinnbíla vegna eldhættu í háspennurafhlöðu. Innköllunin nær til 130 bíla af sex árgerðum. Neytendur 17.7.2026 16:36
Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Tímabilskort hækka um rúm þrjú prósent í nýrri gjaldskrá Strætó. Verð á stökum fargjöldum helst óbreytt. Neytendur 14.7.2026 08:19
Vekja athygli á innköllun leikfangs HMS og Umhverfis- og orkustofnun vekja athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu. Neytendur 13.7.2026 11:32
Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Matvælastofnun varar við neyslu á þremur framleiðslulotum af Bapao beef frá Tjendrawasih þar sem óvissa er um öryggi kjöts sem notað var í vöruna. Neytendur 13.7.2026 10:11