Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Eiður Þór Árnason skrifar 1. október 2026 16:24 Helga Arnardóttir og Ragnhildur Þórðardóttir búa við ólíkan veruleika. Samsett „Ég varð bara mjög afbrýðisöm að heyra af Ragnhildi Þórðardóttur, betur þekkt sem Ragga nagli, sem einhvern veginn er búin að borga niður sextán milljónir króna af íbúðarláninu sínu sem hún tók fyrir tíu árum síðan,“ segir Helga Arnardóttir fjölmiðlakona en Ragnhildur er búsett í Danmörku. „
Þetta er auðvitað lánaform sem er orðið úrelt að öllu leyti,“ segir Helga um hið íslenska verðtryggða húsnæðislán. Hún kafaði ofan í verðtrygginguna í nýjum hlaðvarpsþætti sem gefinn er út af Gímaldinu og er titlaður Verðtryggðu lánin sem aldrei lækka. Helga ræddi niðurstöðuna í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni og segir kveikjuna að verkefninu hafa verið viðtöl við íslenska bankastjóra í sama þætti þar sem þeir töluðu fyrir brotthvarfi verðtryggða lánaformsins. Klippa: Kafar ofan í verðtrygginguna í nýju hlaðvarpi Hún bendir á að mikil hreyfing hafi verið í átt að óverðtryggðum húsnæðislánum eftir fjármálahrunið 2008. Þetta hafi svo snúist við þegar verðbólga og stýrivextir fóru að hækka eftir heimsfaraldur Covid-19. „Þetta var einn þriðji verðtryggð lán og tveir þriðju óverðtryggð hjá Arion banka. Nú eru hlutföllin jöfn sem er ekki góð þróun,“ segir Helga. Íslenska lánið hækkað um ellefu milljónir Helga ræðir við lántaka í hlaðvarpsþættinum sem lýsa reynslu sinni af þessu umdeilda lánaformi. „Ég tek þarna dæmi Helgu Bjargar sem keypti sér íbúð 2005 og þá var lánið á fimmtán milljónir. Svo gátu þau endurfjármagnað því að fasteignamatið hafði snarhækkað og þau fengu milligjöf þarna á milli. Á dauða sínum áttu þau von en ekki að það lán upp á 33 milljónir myndi hlaða á sig ellefu milljóna króna höfuðstól. Þetta er það sem fólk er að lenda í mjög mikið eftir þessa verðbólgu.“ Helga hefur einnig skoðað hvað hafi áhrif á vísitölu neysluverðs sem er eins konar mælitæki fyrir verðbólgu. „Það er allt sem við heimilin þurfum að leggja út fyrir. Það er bensín og það er matur og það eru föt og það eru opinber gjöld og það er þjónusta, klipping, ræktin, það er allt. Þetta er allt reiknað inn í vísitöluna. Til dæmis hækkaði vísitalan um 0,39 prósent frá ágúst til september. Á mannamáli þýðir það fyrir verðtryggt lán að eftir tvo mánuði munu verðtryggð lán hækka. Til dæmis ef ég tæki tíu milljóna króna verðtryggt lán þá hækkar það um 39 þúsund krónur, bara höfuðstóllinn, og afborganirnar hækka líka um 0,39 prósent.“ Lántakinn taki áhættuna Helga gerir athugasemd við að lántakinn taki á sig alla áhættuna sem fylgi verðlagsþróun þegar hann er með verðtryggt lán í staðinn fyrir að áhættunni sé deilt með lánastofnuninni. „Það eru miklir hagsmunir í húfi og mér þætti mjög áhugavert að heyra hvað lífeyrissjóðirnir hafa að segja. Því að þar liggja raunverulegu verðtryggðu hagsmunirnir. Þess vegna er mjög erfitt að vinda ofan af verðtryggingunni,“ bætir hún við. Það kemur í hlut lífeyrissjóða að ávaxta eign lífeyrisþega með þeim hætti að hún haldi í við verðbólgu yfir áratugaskeið. Helga bætir við að verðtryggingin sé stór áskorun fyrir íslensk stjórnvöld. Hvað fannst þér svona koma þér persónulega á óvart þegar þú fórst á kaf ofan í þetta? „Ég ber sem sagt saman sögur Helgu Bjargar hér á landi og Ragnhildar Þórðardóttur úti í Danmörku. Þar var þvílíkt úrval af lánaformum sem þau gátu bara valið úr og þau keyptu íbúð á 49 milljónir.“ Íbúðin hafi verið 85 fermetrar að stærð á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Hverfið hafi ekki verið jafn vinsælt á sínum tíma en sé í dag með þeim eftirsóknarverðustu í borginni. Því hafi eignin hækkað töluvert í verði frá kaupunum fyrir um tíu árum. „Þau voru að taka fyrst lán upp á rúmlega eitt prósent [vexti] 2016 og ég bara gapti. Svo ákváðu þau að endurfjármagna af því að það er þjóðaríþrótt í Danmörku að endurfjármagna. Þar endurfjármagna allir því að í endurfjármögnuninni felst niðurgreiðsla á höfuðstólnum, ekki viðbót eins og hjá Helgu Björgu. Það kom mér svolítið mikið á óvart,“ segir Helga. Líkt og formaður Neytendasamtakanna segir í þættinum þá fer hún ekki endilega fram á það að Íslendingar beri sig saman við Danmörku í þessum efnum. „En megum við bera okkur saman við frændur okkar í Færeyjum sem eru bara með 4,5 eða 4,8 prósent fasta vexti í 30 ár óverðtryggt?“
Reykjavík síðdegis Húsnæðismál Fjármál heimilisins Danmörk Verðlag Mest lesið Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Viðskipti innlent Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Hekla innkallar 2.610 bíla Lækka verð á þúsund vörum Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Hægst á verðhækkun á matvöru Krónan frystir verð til áramóta Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Sveru dósirnar snúa aftur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Sjá meira