Viðskipti erlent

Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Mark Zuckerberg forstjóri Meta og stofnandi Facebook með Donald Trump Bandaríkjaforseta á fundi um gervigreind í Hvíta húsinu í september.
Mark Zuckerberg forstjóri Meta og stofnandi Facebook með Donald Trump Bandaríkjaforseta á fundi um gervigreind í Hvíta húsinu í september. EPA/SHAWN THEW

Bandaríska samfélagsmiðlarisanum Meta hefur verið gert að greiða sekt að andvirði 25 milljarða Bandaríkjadollara eða um þrjú þúsund milljarða króna vegna þess hvernig fyrirtækið laug um meðferð þess á gögnum notenda samfélagsmiðilsins Facebook. Um er að ræða stærstu sekt sem fyrirtækið hefur fengið.

Í umfjöllun BBC kemur fram að dómari í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum hafi gert fyrirtækinu að greiða upphæðina í kjölfar tveggja vikna réttarhalda sem fóru fram fyrr á árinu en Nýja-Mexíkó stefndi fyrirtækinu, sem á Facebook, Instagram og Whatsapp, fyrir meðhöndlun þess á upplýsingum og veitingu þeirra um notendur til ráðgjafafyrirtækisins Cambridge Analytica.

Cambridge Analytica nýtti gögn og upplýsingar um milljónir notenda Facebook í tengslum við pólitíska ráðgjöf sína. Mesta athygli vakti starfsemin í kringum bandarísku forsetakosningarnar 2016 þegar Donald Trump var kjörinn forseti í fyrsta sinn.

Ríkisdómstóll Nýju-Mexíkó komst að þeirri niðurstöðu að Meta hefði vísvitandi villt um fyrir almenningi um meðferð þess á gögnum notenda sem og um það hvernig fyrirtækið hagnast á efni á miðlinum sem inniheldur hatursorðræðu. Stjórnendur Meta hafa endurtekið lýst því yfir undanfarin ár að gögnum um notendur sé ekki deilt með þriðja aðila.

Fram kemur í umfjöllun BBC að Meta hafi neitað sök. Fyrirtækið segir að um aðför að tjáningarfrelsinu sé að ræða og tilraunir til að skattleggja það. Francis Mathew dómari í málinu segir hins vegar að ljóst væri að fyrirtækið hefði viðhaft rangfærslur gagnvart almenningi um það hvernig gögn þeirra á Facebook hafi verið notuð og þeim deilt af ásetningi, frá árunum 2010 til 2021. Yfirlýsingar æðstu stjórnenda fyrirtækisins, meðal annars Mark Zuckerberg, hafi verið til þess fallnar að villa um fyrir almenningi.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×