Viðskipti erlent

Skoða að sam­eina Tesla og SpaceX

Samúel Karl Ólason skrifar
Elon Musk telur það góða hugmynd að sameina SpaceX og Tesla en segir óljóst hvort af því verði.
Elon Musk telur það góða hugmynd að sameina SpaceX og Tesla en segir óljóst hvort af því verði. AP/Julia Demaree Nikhinson

Elon Musk, auðugasti maður heims, segir til skoðunar að sameina tvö þekktustu fyrirtæki hans, bíla- og vélmennafyrirtækið Tesla og geimferða-, gervigreindar- og internetfyrirtækið SpaceX. Bæði fyrirtæki hafa stofnað sérstakar nefndir sem hafa það hlutverk að kanna hvað hægt væri að græða á slíkri sameiningu.

Sú vinna er þó enn á frumstigi og Musk sagði í gær, þegar hann var að ræða við hluthafa SpaceX, að svo gæti farið að niðurstaðan yrði að fyrirtækin yrðu ekki sameinuð. Musk, sem er forstjóri beggja fyrirtækja, sagði að sér þætti það þó góð hugmynd.

Eins og segir í grein Wall Street Journal hafa greinendur um nokkuð skeið velt fyrir sér hvort sameining yrði raunin. Slík myndi setja stærsta geimferðafyrirtæki heims og annan stærsta rafmagnsbílaframleiðanda heims undir sama þak, á sama tíma og Musk leggur meiri áherslu á gervigreind í báðum fyrirtækjum. Hann á sömuleiðis stóra hluti í báðum fyrirtækjum og myndi líklega hafa stjórn á sameinuðu félagi.

Tesla er metið á um 1,5 billjónir dala (tólf núll) og SpaceX á um tvær billjónir (um 243 billjónir króna).

Sjá einnig: Sýndu fljúgandi Roadster

SpaceX birti ársfjórðungsuppgjör þar sem fram kom að tekjur jukust um rúmlega 160 prósent á milli ára, sem var töluvert umfram væntingar greinenda, og að fyrirtækið hefði hagnast um 4,4 milljarða dala (535 milljarða króna).

SpaceX og Tesla vinna þegar saman á ýmsum sviðum og eru til að mynda að vinna saman að framleiðslu örflagna í fyrirtæki sem heitir Terafab. Fyrstu flögurnar eiga að líta dagsins ljós í maí eða júní á næsta ári, samkvæmt því sem Musk sagði í gær.

Samkvæmt Reuters er stór hluti tekna SpaceX til kominn vegna tekna af því að leigja út gagnaver til fyrirtækja eins og Anthropic og Google. Uppgjörið þykir sterklega gefa til kynna að fjárfesting SpaceX í gagnaverum og gervigreind sé að skila hagnaði, þrátt fyrir að kostnaðurinn sé mikill.

Eins og staðan er nú segir í frétt Reuters að útlitið sé að skýjaþjónusta spili stærri rullu í starfsemi fyrirtækisins en þróun eigin gervigreindar.

Starlink-gervihnattanetið hefur lengi verið kjarnastarfsemi SpaceX og framtíðaráætlanir forsvarsmanna fyrirtækisins velta enn að miklu leyti á því að þróun Starship-geimfarsins heppnist. Sú þróun hefur dregist verulega á undanförnum árum.

Sjá einnig: Starship á spor­braut í fyrsta sinn

Um 13,6 milljónir manna í heiminum eru áskrifendur að þjónustu Starlink, sem er einnig umfram spár greinenda. Sá vöxtur hefur þó kostað sitt, þar sem hagnaður af hverjum notanda hefur lækkað úr 99 dölum á mánuði árið 2023 í 69 dali á þriðja fjórðungi þessa árs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×