Viðskipti erlent

Apple fær nýjan for­stjóra

Kjartan Kjartansson skrifar
John Ternus, nýr forstjóri Apple, þegar hann kynnti Ipad pro árið 2018.
John Ternus, nýr forstjóri Apple, þegar hann kynnti Ipad pro árið 2018. AP/Bebeto Matthews

John Ternus er nýr forstjóri bandaríska tæknirisans Apple. Hann tók við starfinu af Tim Cook sem leiddi gegndarlausan vöxt fyrirtækisins í krafti vinsælda snjallsíma þess.

Ternus þessi vann meðal annars að vörum Apple eins og Apple-úrinu, Airpods-heyrnartólunum og þrívíddargleraugunum Vision Pro. Hann verður við stjórnvölinn þegar Apple kynnir næstu kynslóð Iphone-snjallsíma í næstu viku, að sögn AP-fréttastofunnar.

Apple hefur að undanförnu reynt að hasla sér völl í gervigreindartækni líkt og flestöll önnur tæknifyrirtæki í heiminum en gengið nokkuð brösuglega.

Cook, sem var forstjóri í fimmtán ár, verður nú stjórnarformaður Apple. Talið er að hann verði áfram lykilmaður í að gæta hagsmuna fyrirtækisins gagnvart Donald Trump Bandaríkjaforseta.

Donald Trump (t.v.) með Tim Cook, forstjóra Apple, (t.h.) í Hvíta húsinu í fyrra. Cook færði Trump fokdýra gjöf: glerstyttu á gullfæti sem sést í forgrunni á myndinni.Hvíta húsið

Apple-forstjórinn ræktaði tengslin við Trump. Hann gaf forsetanum meðal annars glerstyttu á fæti úr 24 karata gulli á viðburði í Hvíta húsinu í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×