Viðskipti erlent

Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjá­tíu ár

Samúel Karl Ólason og Telma Tómasson skrifa
Seðlabanki Japans hækkaði stýrivexti og er vonast til þess að með því megi fá japanska fjárfesta til að líta meira til sinna heimaslóða við fjárfestingar.
Seðlabanki Japans hækkaði stýrivexti og er vonast til þess að með því megi fá japanska fjárfesta til að líta meira til sinna heimaslóða við fjárfestingar. AP/Shuji Kajiyama

Seðlabanki Japans hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig, úr 1 prósenti í 1,25 prósent. Slík hækkun hefur ekki verið gerð í 31 ár en þetta er gert til að mæta efnahagslegum þrýstingi heimafyrir og gáfu forsvarsmenn bankans til kynna að frekari hækkanir væru líklegar.

Samkvæmt frétt BBC stendur Japan frammi fyrir ýmsum efnahagslegum áskorunum, þar á meðal viðvarandi veiku jeni, hækkandi verðlagi og fækkun vinnandi fólks.

Helstu seðlabankar heims hafa farið sömu leið að undanförnu, ekki síst í ljósi þess að stríðsátök Bandaríkjamanna við Íran og hækkun olíuverðs hefur ýtt undir verðbólgu. Á miðvikudag hækkaði til að mynda bandaríski Seðlabankinn viðmiðunarvexti sína í fyrsta sinn í meira en þrjú ár og Seðlabanki Evrópu hækkaði einnig vexti fyrr í þessum mánuði.

Í frétt Wall Street Journal segir að Japanir eigi gífurlega mikið af erlendum hlutabréfum og verðbréfum. Í heildina séu þetta um fimm billjónir dala (tólf núll) en um helmingur þessara bréfa eru skráð í Bandaríkjunum.

Forsvarsmenn Seðlabankans í Japan vonast til þess að með því að hækka vexti, verði hægt að fá meira af þessum peningum aftur heim og auka fjárfestingar þar, í stað þess að peningarnir fari í að halda uppi hlutabréfaverði í Bandaríkjunum og annarsstaðar í heiminum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×