Japan

Japan

Höfuðborg: Tókýó. Mannfjöldi: 123,3 milljónir (2025). Flatarmál: 377.975 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Vél­mennið Ace sigrar at­vinnu­menn í borð­tennis

Verkfræðingar tæknifyrirtækisins Sony hafa þróað vélmenni sem reynst hefur mjög svo gott í borðtennis. Vélmennið, sem kallað er Ace, er svo gott að það getur sigrað atvinnumenn. Gervigreind var notuð til að kenna vélmenninu borðtennis og lærði það með því að spila íþróttina.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Af­gerandi sigur stjórnar­flokkanna í Japan

Útlit er fyrir að stjórnarflokkar Japans, undir forystu Sanae Takaichi forsætisráðherra, hafi náð miklum meirihluta í neðri deild japanska þingsins.  Samkvæmt nýjustu tölum hefur samsteypustjórn Takaichi unnið 352 af 465 sætum þingsins og þar af hefur flokkur hennar unnið 316 sæti.

Erlent
Fréttamynd

Japanir halda í kjör­klefana

Japanir ganga í kjörklefann í dag eftir að Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans, boðaði til skyndikosninga. Skoðanakannanir spá fyrir um afgerandi sigur flokks hennar.

Erlent
Fréttamynd

Svíar líta til kjarn­orku­vopna

Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að ríkisstjórn hans hafi átt í grunnviðræðum við yfirvöld Í Bretlandi og í Frakklandi um mögulegt samstarf á sviði kjarnorkuvopna. Ummælin þykja benda til þess að ráðamenn í Evrópu telji sig geta mögulega ekki reitt sig á vernd Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

Drauma­ferðin gæti verið nær en þú heldur

Úrval Útsýn býður upp á fjölmargar spennandi ævintýraferðir í vetur og í vor. Meðal þeirra eru ferðir til Óman og Dubai í febrúar, til Japans í mars og til Egyptalands í maí. Allar þrjár ferðirnar hafa fengið góðar viðtökur meðal landsmanna og því þurfa áhugasamir að bregðast skjótt við til að tryggja sér pláss.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Hæstu stýrivextir í þrjá­tíu ár

Seðlabanki Japan hækkaði stýrivexti þar í landi í morgun og hafa þeir ekki verið hærri í þrjá áratugi. Verðbólga hefur verið nokkur í Japan, jenið hefur veikst gegn dollaranum og kaupmáttur hefur dregist saman.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Mortal Kombat-stjarna látin

Japansk-bandaríski leikarinn Cary-Hiroyuki Tagawa, sem þekktastur er fyrir hlutverk sín í Mortal Kombat-myndunum og James Bond-myndinni Licence to Kill, er látinn. Hann varð 75 ára.

Lífið
Fréttamynd

Bað for­sætis­ráð­herra Japan að ögra ekki Kín­verjum

Nokkrum dögum eftir að Sanae Takaichi, nýr forsætisráðherra Japan, reitti ráðamenn í Kína til reiði með því að segja að innrás Kínverja í Taívan gæti leitt til hernaðarviðbragðs frá Japönum, ræddi Xi Jinping, forseti Kína, við Donald Trump, kollega sinn í Bandaríkjunum. Xi er sagður hafa verið bálreiður og varði hálftíma af klukkutímalöngu símtalinu í að útskýra fyrir Trump að Kína ætti í raun Taívan.

Erlent
Fréttamynd

„Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“

Ráðamenn í Kína eru enn fjúkandi reiðir í garð Japana vegna ummæla nýs forsætisráðherra Japans um Taívan frá síðustu viku. Meðal annars hafa Kínverjar hótað því að „rústa“ Japan og krefjast þeir þess að Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans, dragi ummæli sín um að Japanir myndu mögulega koma Taívönum til aðstoðar, geri Kínverjar innrás í eyríkið, til baka.

Erlent
Fréttamynd

PlayStation 5 slær Xbox 360 við

Japanska fyrirtækið Sony hefur selt 84,2 milljónir eintaka af PlayStation 5 leikjatölvunni. Þannig hefur tölvan formlega tekið fram úr Xbox 360 leikjatölvunni og öllum öðrum leikjatölvum Microsoft í gegnum árin.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Lagði til að for­sætis­ráð­herrann yrði afhöfðaður

Embættismenn í Kína hafa brugðist reiðir við ummælum nýs forsætisráðherra Japans um að Japanar myndu mögulega koma Taívönum til aðstoðar geri Kínverjar innrás í eyríkið í framtíðinni. Háttsettur kínverskur erindreki í Japan skrifaði til að mynda færslu þar sem hann gaf til kynna að hausinn yrði höggvinn af Sanae Takaichi, forsætisráðherra.

Erlent
Fréttamynd

Játar að hafa myrt Shinzo Abe

Fjörutíu og fimm ára karlmaður, Tetsuya Yamagami, hefur viðurkennt að hafa myrt Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra Japans, á útifundi árið 2022. Réttarhöld í máli Yamagami hófust í borginni Nara í vesturhluta Japans í morgun.

Erlent
Fréttamynd

Ætlar að flýta hernaðar­upp­byggingu í Japan

Sanae Takaichi, fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra Japans, hélt sína fyrstu stefnuræðu í morgun. Hún hét því að hraða hernaðaruppbyggingu í Japan og bæta varnir ríkisins til muna. Í ræðunni vísaði hún sérstaklega til aukinnar hervæðingar í Norður-Kóreu, Kína og Rússlandi og ógnina sem Japönum stafaði frá þeim ríkjum.

Erlent