Erlent

Hlutu Nóbels­verð­launin fyrir að leysa efna­fræði­lega ósamhverfu

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Henri B. Kagan og Kenso Soai eru Nóbelsverðlaunahafar.
Henri B. Kagan og Kenso Soai eru Nóbelsverðlaunahafar. Nóbel

Henry Kagan og Kenso Soai skipta með sér Nóbelsverðlaununum í efnafræði fyrir uppgötvun ólínulegra áhrifa og sjálfhvötunar í ósamhverfri lífrænni efnasmíð.

Þetta var tilkynnt af Konunglegu sænsku vísindaakademíunni nú í morgun. Þar segir að tvö afbrigði séu til af sumum sameindum, til dæmis amínósýrum, og séu þær spegilmyndir hvor annarrar. 

Lengi vel hafi það verið ráðgáta af hverju lífverur innihalda einungis aðra þessara spegilmynda. En Kagan og Soai hafa nú fengið Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir að hafa fundið lausnina á þessari ráðgátu um efnafræðilega ósamhverfu.

„Efnafræði lífsins er það sem efnafræðingar kalla einhendna (e. homochiral), eftir grísku orðunum fyrir „sami“ og „hönd“. Rétt eins og hendur eru allar amínósýrur til í tveimur spegluðum afbrigðum, en aðeins annað þeirra finnst í prótínunum í frumum þínum. Hitt finnst sjaldan í náttúrunni,“ segir í tilkynningunni.

Efnafræðingar hafa lengi velt því fyrir sér af hverju spegluðu afbrigðin finnast sjaldan í náttúrunni. Kagan steig fyrsta skrefið í átt að lasuninni árið 1986 þegar hann uppgötvaði nýja leið til að hafa áhrif á efnahvörf. Það gerði honum kleift að ná fram meira umframmagni af annarri spegilmyndinni en áður hafði verið talið mögulegt.

Soai birti síðan lykilgrein árið 1995 þar sem hann lýsir því hvernig hann hannaði fyrsta efnahvarfið sem gat mögulega orðið einhent. Árið 2003 tókst honum að framkvæma það.

„Þökk sé Henri Kagan og Kenso Soai vitum við nú hvernig einhendni getur orðið til. Uppgötvanir þeirra hafa skipt sköpum fyrir efnafræðinga sem hanna efnahvörf til lyfjaframleiðslu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×