Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Samúel Karl Ólason skrifar 22. apríl 2026 21:52 Vélmennið Ace í bprðtennisviðureign við atvinnumanninn Akito Seki. AP/Sony Verkfræðingar tæknifyrirtækisins Sony hafa þróað vélmenni sem reynst hefur mjög svo gott í borðtennis. Vélmennið, sem kallað er Ace, er svo gott að það getur sigrað atvinnumenn. Gervigreind var notuð til að kenna vélmenninu borðtennis og lærði það með því að spila íþróttina.
Forsvarsmenn Sony segja þetta í fyrsta sinn í svo almennri keppnisíþrótt sem vélmenni sýni svipaða getu og atvinnumenn. Ace notar níu myndavélar til að fylgjast með kúlunni og greina leið hennar. Þá greinir vélmennið snúning hennar út frá því hvernig myndin á henni hreyfist. „Það er engin leið til að forrita vélmenni til að spila borðtennis. Þú verður að læra að spila af reynslu,“ sagði Peter Dürr, einn verkfræðinga Sony sem kom að þróun Ace í viðtali við AP fréttaveituna. Starfsmenn Sony byggðu borðtennisvöll í takt við skilyrði á Ólympíuleikunum og fengu atvinnumenn og aðra til að keppa við Ace og í senn kenna vélmenninu borðtennis. Sumir þeirra segja getu vélmennisins hafa komið þeim á óvart. Ace keppti við fjóra japanska atvinnumenn í desember og vann alla nema einn. Hér að neðan má sjá viðtöl við menn sem komu að þróun Ace og inn á milli er myndefni af leikjum Ace við atvinnumennina. Sjá má styttri útgáfu hér neðar. Michael Spranger, sem leiðir vinnu Sony varðandi gervigreind, segir að einn helsti vandinn varðandi vélmenni í dag sé að þróa þau til að hreyfa sig af miklum hraða. Vélmenni í verksmiðjum hreyfi sig oft mjög hratt en þau eru að framkvæma sömu hreyfingarnar aftur og aftur. „Með þessari tækni getum við sýnt að hægt er að þjálfa vélmenni til að aðlagast og keppa í umhverfi sem tekur stöðugum breytingum,“ segir Spranger. Meðal annars segir hann að hægt væri að nota tæknina við framleiðslu og í iðnaði. Þá sé ekki erfitt að ímynda sér að hægt væri að nota svona búnað við hernað. Eins og bent er á í grein AP sló vélmenni á tveimur fótum heimsmetið í hálfu maraþoni í Kína um síðustu helgi. Hins vegar sé erfitt að þróa vélmenni sem geti átt í samskiptum við og keppt við menn með því að bregðast mjög hratt við breyttum aðstæðum. Vísindamenn á sviði gervigreindar hafa lengi notað borðspil og íþróttir eins og skák til að marka getu gervigreindar. Markmið framleiðenda vélmenna hefur þó um nokkuð skeið verið að færa vélmennin meira í raunheima, eins og í tilfelli Ace.
Japan Tækni Sony Borðtennis Gervigreind Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Sjá meira