Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Árni Sæberg skrifar 25. september 2026 11:16 Birta Ósk Friðbertsdóttir, markaðsstjóri Prís. Prís Lágvöruverðsverslunin Prís mun ekki verða við ákalli verkalýðshreyfingarinnar um að halda aftur af verðhækkunum vegna verðbólgunnar sem nú geisar. Að sögn Prís er ástæðan einföld, fyrir Prís sé lágt verð ekki tímabundin aðgerð heldur einföld og skýr stefna.
VR, LÍV og Fagfélögin sendu verðmótandi fyrirtækjum bréf í síðustu viku og óskuðu svara um hvað þau ætli að leggja af mörkum svo að kjarasamningar geti haldið gildi sínu. Nokkur fyrirtæki hafa þegar brugðist við áskorun félaganna. SS hefur skuldbundið sig til að fresta verðhækkunum fram í janúar og um helgina var greint frá því að Bera, móðurfélag Ölgerðarinnar, Danól, Gæðabaksturs, Kjarnavara og fleiri vörumerkja, hefði heitið því að hækka ekki verð framleiðsluvara sinna um áramótin, umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Þá tilkynnti Krónan í gær að hún hefði fryst verð á 647 vörum undir vörumerkjunum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Grön Balance og Gestus. Verðfrystingin stendur til og með 31. desember 2026. Í fréttatilkynningu frá Prís segir að í framhaldi af ákalli frá verkalýðshreyfingunni um sameiginlegt átak gegn verðbólgu og af frétt um að Krónan hafi fryst verð vilji Prís koma eftirfarandi á framfæri: Ekki tímabundin aðgerð að halda verði niðri „Prís hefur verið ódýrasta matvöruverslunin í öllum verðkönnunum ASÍ frá opnun fyrir tveimur árum. Lágt verð allt árið um kring er skýr stefna og loforð Prís til viðskiptavina sinna. Það hefur Prís efnt frá upphafi og er staðráðið í að gera það áfram. Þegar Prís var opnað hafði ný lágvöruverðsverslun ekki verið opnuð á Íslandi í 24 ár, en fátt er betri vörn gegn verðbólgu en hörð samkeppni.“ Prís fagni því að fleiri leggi sitt lóð á vogarskálarnar við að sporna gegn verðbólgu. Fyrir Prís sé lágt verð hins vegar ekki tímabundin aðgerð heldur einföld og skýr stefna. „Okkar leið er einföld. Við erum ódýrust og ætlum að vera það áfram, ekki bara á ákveðnum vörum í ákveðinn tíma. Við leitum allra leiða til að halda kostnaði og verði niðri fyrir heimilin. Þegar kemur að heimilisútgjöldum skiptir heildarkostnaður matarkörfunnar meira máli en hversu margar einstakar vörur eru frystar í verði tímabundið,“ er haft eftir Birtu Ósk Friðbertsdóttur, markaðsstjóra Prís. Fylgjast náið með þróun Þá segir að í verðkönnun ASÍ frá því í ágúst hafi komið fram að matarkarfan hjá Krónunni kostaði 19.522 krónur en hjá Prís 17.433 krónur. Munurinn sé þar um 11,9 prósent á verði matarkörfunnar. Að jafnaði hafi kannanir ASÍ sýnt 4 til 12 prósenta mun á milli verslananna tveggja. Spara megi talsvert með því að versla í ódýrustu verslun landsins og sporna gegn verðbólgu um leið. Prís muni áfram fylgjast náið með þróun innkaupaverðs, kostnaðar og verðlags og leita leiða til að skila mögulegum kostnaðarlækkunum áfram til viðskiptavina. „Við ætlum ekki að bíða eftir sérstökum herferðum til að bjóða lægsta verðið. Þetta er verkefni sem við vinnum að alla daga. Besta verðbólguvörnin er að versla þar sem er ódýrast,“ er haft eftir Birtu Ósk að lokum.
Verðlag Verslun Stéttarfélög Mest lesið Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Neytendur Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Atvinnulíf 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Viðskipti innlent Verulegur samdráttur hjá Isavia Viðskipti innlent Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Atvinnulíf Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Viðskipti innlent Mikill munur á afkomu almannatengla Viðskipti innlent Krónan frystir verð til áramóta Neytendur Hægst á verðhækkun á matvöru Neytendur Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Hægst á verðhækkun á matvöru Krónan frystir verð til áramóta Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Sveru dósirnar snúa aftur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Sjá meira