Danmörk

Danmörk

Höfuðborg: Kaupmannahöfn. Mannfjöldi: 6,0 milljónir (2025). Flatarmál: 43.094 ferkílómetrar.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fall­hlífin byrjaði að snúast eftir opnun

Fyrrverandi formaður danska fallhlífasambandsins til margra ára varð vitni að banaslysinu í dag þar sem íslenskur maður á þrítugsaldri lét lífið. Hann segir að skömmu eftir að fallhlífin opnaðist hafi hún snúist upp á sig.

Innlent
Fréttamynd

Ungi Ís­lendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla

Ungi íslenski karlmaðurinn sem lést í fallhlífarstökki í Danmörku í morgun var þar í fallhlífanámi. Lögreglan á Fjóni segir við Vísi að hann hafi ekki verið með lögheimili í Danmörku. Að sögn varaformanns Fallhlífasambands Danmerkur var um svokallað „static spring“-stökk að ræða, sem þykir ein öruggasta kennsluaðferðin í fallhlífastökki.

Innlent
Fréttamynd

Mette Frederiksen leitar yfir miðju

Mette Frederiksen handhafi ríkisstjórnarmyndunarumboðsins í Danmörku segir stíf fundarhöld framundan við Venstre og Íhaldsflokkinn. Kannað verði hvort grundvöllur sé fyrir annarri stjórn þvert yfir miðju hins pólitíska litrófs.

Erlent
Fréttamynd

Rasmus­sen setur þrýsting á Frederiksen

Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi Moderaterna í Danmörku, segist hættur að ræða um stjórnarmyndun við Mette Frederiksen, leiðtoga Jafnaðarmanna, nema hún fallist á að ræða við fulltrúa borgaraflokkanna. Flokkur Rasmussen er í lykilstöðu við stjórnarmyndun. 

Erlent
Fréttamynd

Lands­stjórn Fær­eyja hvetur til olíu­vinnslu

Ný landsstjórn Færeyja hyggst hefja viðræður við ríkisstjórn Danmerkur um að Færeyingum verði tryggður sjálfsákvörðunarréttur í öllum málum sem varða Færeyjar. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Þórshöfn í dag þar sem oddvitar kynntu samstarfssáttmálann.

Erlent
Fréttamynd

Ný lands­stjórn boðar ó­breytt ríkja­sam­band við Dan­mörku

Víðtækar pólitískar málamiðlanir voru nauðsynlegar, sagði Beinir Johannesen, nýr lögmaður Færeyja, á blaðamannafundi í Þórshöfn laust fyrir hádegi. Þar kynntu formenn flokkanna þriggja, sem mynda nýja landsstjórn í Færeyjum, stjórnarsáttmálann sem ber fyrirsögnina „Ábyrgð, stöðugleiki og breið samstaða“.

Erlent
Fréttamynd

Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Ís­lands

Óvenjuleg heræfing fór fram á um páskana í samstarfi danska og franska hersins. Frönsk herflutningavél ferjaði þá danskar herþyrlur milli Danmerkur og Íslands. Verkefnið reyndist krefjandi og þurfti útsjónarsemi til að koma þyrlunum í flutningavélina. Miðað við mælistærðir eru þær of stórar til að rúmast um borð, jafnvel þótt spaðarnir séu teknir af.

Innlent
Fréttamynd

Ás­grímur Halldórs­son slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave

„Danirnir höfðu engar áhyggjur af þessu. Það er það eina sem ég veit,“ segir Ægir Birgis­son, skip­stjóri Ás­gríms Halldórs­sonar, nýs upp­sjávar­skips, sem er í smíðum á Skagen í Dan­mörku og slitnaði frá bryggju þegar stormurinn Dave gekk með látum yfir Jót­land á páska­dag.

Innlent
Fréttamynd

Ís­land, Græn­land og Fær­eyjar saman hefðu sterka samnings­stöðu

Eldur Ólafsson forstjóri Amaroq Minerals segir að ef Ísland, Færeyjar og Grænland semji um fríverslunarsamning og sameini krafta sína séu þau í afar sterkri samningsstöðu gagnvart Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Norður-Atlantshaflöndin skipti nú heiminn máli og það eigi þau að nýta sér fram í rauðan dauðann.

Innlent
Fréttamynd

Telur að múslimar geti ekki verið Svíar

Leiðtogi sænska fjarhægriflokksins Svíþjóðardemókrata segir að trúaðir múslimar geti ekki talist sænskir. Nýkjörinn þingmaður í Danmörku sætir harðri gagnrýni fyrir að efast um þjóðerni talskonu annars flokks.

Erlent
Fréttamynd

Upp­nám í bláu blokkinni eftir dönsku kosningarnar

Tveir nýkjörnir þingmenn úr röðum bláu blokkarinnar svonefndu í Danmörku voru reknir úr flokkum sínum vegna hneykslismála um helgina. Einn leiðtoga hennar segir út um bláu blokkina. Stjórnarmyndunarviðræður halda áfram eftir helgarfrí á morgun.

Erlent
Fréttamynd

Hera verður ást­kona JFK

Íslenska leikkonan Hera Hilmarsdóttir mun leika Ingu Arvad, danskan blaðamann sem átti í ástarsambandi við JFK, í nýrri þáttaröð um uppgang Kennedy-fjölskyldunnar á síðustu öld og hvernig John F. Kennedy komst úr skugga eldri bróður síns.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

„Leyni­leg á­róðurs­her­ferð“ fyrir opnum tjöldum

Þrír Bandaríkjamenn með tengsl við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, voru í fyrra sagðir undir eftirliti dönsku leyniþjónustunnar. Voru þeir sakaðir um að eiga í eins konar leynilegri áróðursherferð í Grænlandi og leggja grunninn að mögulegri yfirtöku Bandaríkjanna á eyjunni, eins og Trump hefur ítrekað talað um.

Erlent
Fréttamynd

Boðar til við­ræðna við sex flokka

Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins, hefur boðið fulltrúum sex flokka til fyrstu umferðar stjórnarmyndunarviðræðna eftir þingkosningar sem voru haldnar í Danmörku á þriðjudag. Viðræðurnar eiga að hefjast á morgun.

Erlent
Fréttamynd

Allt velti á Rasmus­sen

Prófessor í stjórnmálafræði segir framtíð ríkisstjórnar Dana velta á hvað formaður Moderaterne gerir á fundi konungs nú eftir hádegi. Síðasti forsætisráðherra sé í sterkri stöðu vegna umræðu um öryggismál í Danmörku.

Erlent
Fréttamynd

Vill halda á­fram sem for­sætis­ráðherra

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, segist vilja halda áfram sem forsætisráðherra landsins, þrátt fyrir að flokkurinn hafi tapað tólf þingsætum í þingkosningunum sem fram fóru í gær.

Erlent
Fréttamynd

Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn

Hvorki rauða né bláa blokkin náði hreinum meirihluta í þingkosningunum í Danmörku. Rauða blokkin fékk 84 þingsæti en sú bláa fékk 77. Moderaterne-flokkur Lars Løkke Rasmussen fékk fjórtán sæti og er í lykilstöðu fyrir stjórnarviðræður, sem gætu reynst flóknar en Troels Lund Poulsen, leiðtogi Venstre, hefur útilokað áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf með Sósíaldemókrataflokki Mette Frederiksen.

Erlent
Fréttamynd

Útgönguspá: Ríkis­stjórninni refsað en Løkke í lykil­stöðu

Dönsku ríkisstjórnarflokkarnir, allra helst Sósíaldemókrataflokkur Mette Frederiksen forsætisráðherra, tapa fylgi í þingkosningum í kvöld samkvæmt útgönguspám. Samt er Lars Løkke Rasmussen úr Moderaterne í lykilstöðu hvað varðar stjórnarmyndun, þar sem hvorki rauða né bláa blokkin fær hreinan meirihluta.

Erlent
Fréttamynd

Lista­maður reyndi að kaupa at­kvæði

Danskur listamaður hefur verið handtekinn eftir að hafa reynt að kaupa atkvæði á kjördag. Hann birti færslu þar sem hann bauð kjósendum þrjú hundruð þúsund króna málverk ef þeir greiddu atkvæði með Enhedslisten í þingkosningunum sem haldnar eru í dag.

Erlent
Fréttamynd

Græn­lendingar gætu verið í lykil­stöðu

Danir ganga að kjörborðinu í þingkosningum í dag og mjótt er á munum milli rauðu og bláu blokkarinnar samkvæmt könnunum. Grænlendingar kjósa einnig tvo fulltrúa inn á danska þingið og fyrrverandi formaður jafnaðarmannaflokksins þar í landi segir stuðning þeirra geta reynst mikilvægan.

Innlent