Þrátt fyrir að önnur borgin sé í Wales en hin í Englandi er ekki langt á milli og því talað um grannaslag Wales og Englands er liðin mætast.
Markalaust var í hálfleik en fyrsta og eina mark leiksins kom á 67. mínútu er Bristol komst yfir. Markið skoraði Josh Brownhill með þrumuskoti af löngu færi. Lokatölur 1-0.
FT: Cardiff City 0-1 Bristol City
It's another derby that has gone the wrong way for the Bluebirds as Josh Brownhill's screamer proves the difference
https://t.co/7ydacCdQyW
More reaction https://t.co/7ydacCdQyWpic.twitter.com/UdhpwCah33
— BBC Sport Wales (@BBCSportWales) November 10, 2019
Fyrrum félagar Arons Einars Gunnarssonar í Cardiff eru í 14. sæti deildarinnar en Bristol City er í 6. sæti deildarinnar efir sigurinn.