Skoraði fernu á móti Íslandsmeisturunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. desember 2019 17:00 Sveindís Jane Jónsdóttir var með 7 mörk og 8 stoðsendingar í Pepsi deild kvenna í sumar. Vísir/Vilhelm
Keflvíkingurinn Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði öll fjögur mörk síns liðs í gær þegar Keflavík vann 4-2 sigur á Íslandsmeisturum Vals í lokaumferð Bose móts kvenna í Reykjaneshöllinni. Nú er bara stóra spurningin hvar þessi átján ára framherji spilar næsta sumar. Með sigrinum kom Keflavík í veg fyrir að Valskonur tryggðu sér sigur í Bose æfingamótinu en Valsliðið hafði fjögur stig fyrir leikinn eftir stórsigra á FH og KR. FH og KR mætast í lokaleiknum en þurfa stórsigur til að komast upp fyrir Val þar sem þau eru með tvö stig. Sveindís Jane kom Keflavík í 1-0 í fyrri hálfleik og bætti síðan við þrennu í þeim síðari áður en A-landsliðskonan Fanndís Friðiksdóttir minnkaði muninn með tveimur mörkum í lokin. Keflavíkurliðið féll úr Pepsi deild kvenna í haust og er búist við því að Sveindís Jane Jónsdóttir myndi finna sér lið í Pepsi deildinni. Hún er farin að banka á dyrnar í A-landsliðinu og þarf væntanlega að spila í efstu deild ætli hún að komast þangað inn. Það er ljóst að mörg félög hafa örugglega áhuga á því að semja við þessa stórefnilegu unglingalandsliðskonu og ekki minnkaði áhuginn við þessa frammistöðu hennar á móti Íslandsmeisturnum. „Þetta var frábær leikur hjá okkur og ég verð að viðurkenna að við bjuggumst ekki við að vinna Val í kvöld. Við vorum ákveðnar og ætluðum að standa okkur vel og það tókst heldur betur. Það er gaman að fara inn í jólafríið eftir svona sigur," sagði Sveindís Jane, hetja Keflavíkur í leiknum, í viðtali við fótbolta.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Sjá meira