Íslenski boltinn

„Við erum alltaf að fara að taka þetta“

Gunnar Berg Stefánsson skrifar
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoraði þrennu í dag.
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoraði þrennu í dag. vísir/Guðmundur

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir var hetja Breiðabliks þegar liðið vann ótrúlegan 5-4 sigur á Þrótti í Kópavogi. Hrafnhildur skoraði þrennu og sigurmarkið á 90. mínútu eftir að Blikar höfðu lent 4-1 undir.

„Bara þvílíkur léttir. Þetta var ótrúlegt,“ sagði Hrafnhildur eftir leik. Sigurinn heldur Breiðabliki þremur stigum fyrir ofan FH á toppi Bestu deildarinnar.

Breiðablik var þremur mörkum undir en tókst að snúa leiknum algjörlega sér í hag. Hrafnhildur segir trúna aldrei hafa horfið úr liðinu.

„Já, klárlega. Við þurfum að gera það ef við ætlum að verða Íslandsmeistarar, þannig að það var bara eins gott.“

Sigurmarkið kom á 90. mínútu þegar Líf Joostdóttir van Bemmel komst fram hægri kantinn og sendi boltann fyrir markið. Hrafnhildur var mætt á fjærstöngina og tryggði Blikum öll þrjú stigin.

„Sjitt, ég sé hana vera komna þarna í einhverja einn á einn stöðu á kantinum og hún er alltaf að fara að taka hana, þannig að ég var bara að skila mér inn í teiginn og vona það besta. Svo kemur fyrirgjöfin.“

„Aðspurð hversu mikið sigurinn gæfi liðinu fyrir lokasprettinn var Hrafnhildur ekki í vafa.“

„Bara ekkert eðlilega mikið. Við erum alltaf að fara að taka þetta.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×