Íslenski boltinn

FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verð­launin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ingibjörg Magnúsdóttir úr FH var valin sú efnilegasta og fékk Flugleiðahornið frá Þorvaldi Örlygssyni, formanni KSÍ.
Ingibjörg Magnúsdóttir úr FH var valin sú efnilegasta og fékk Flugleiðahornið frá Þorvaldi Örlygssyni, formanni KSÍ. Vísir/Guðmundur

FH fékk bæði stóru verðlaunin í Bestu deild kvenna í fótbolta en þau voru afhent eftir lokaumferðina í dag.

FH-ingurinn Ída Marín Hermannsdóttir var valin besti leikmaður Bestu deildar kvenna 2026 og Ingibjörg Magnúsdóttir úr FH var valin sú efnilegasta. Það eru leikmenn Bestu deildar sem kjósa.

Aðrar sem voru tilnefndar sem besti leikmaður voru Blikarnir Agla María Albertsdóttir, Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir og Líf Joostdóttir van Bemmel.  Aðrar sem voru tilnefndar sem efnilegastar voru Þróttarinn Bríet Fjóla Bjarnadóttir, Stjörnukonan Fanney Lísa Jóhannesdóttir og Blikinn Líf Joostdóttir van Bemmel.

Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ afhenti verðlaunin eftir leik Breiðabliks og FH en það eru „Flugleiðahornin“ svokölluðu.

Guðni Eiríksson þjálfari FH tók við verðlaununum fyrir hönd Ídu Marínar sem yfirgaf FH um mitt sumar og gekk þá til liðs við sænska félagið Hammarby. Ída Marín lék 15 leiki í deildinni og skoraði í þeim 13 mörk áður en hún fór út í atvinnumennsku.

Ingibjörg, sem er fædd árið 2009, lék alla 23 leiki liðsins í deildinni og skoraði í þeim sex mörk auk þess að gefa tíu stoðsendingar.

Blikinn Hrafnhildur Ás Halldórsdóttir fékk einnig Gullskóinn en hún skoraði 19 mörk í deildinni í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×