Upp er runninn 17. desember. Þriðji í aðventu kom og fór. Aðeins sjö dagar til jóla.
Vísir ætlar að gleðja lesendur sína með jóladagatali þar sem leitað verður í gullkistuna á sjónvarps- og útvarpsvefnum. Óhætt er að segja að þar sé hægt að gleyma sér við áhorf á gamalt og gott efni.
Hér að neðan má sjá uppátæki Péturs Jóhanns Sigfússonar í útvarpsþættinum Ding Dong á X-inu 977. Þannig var að þeir Doddi litlu komu saman í tilefni 20 ára afmælis X-ins.
Pétur Jóhann fór út á Miklubraut undir liðnum Honk if you want legs!
Kapparnir hentu líka í skemmtilegt símaat þar sem spiluð var dagsgömul upptaka af Pétri og hringt á veitingahús. Útkoman var eiginlega ótrúleg, reyndar í annarri tilraun og má kannski þakka þjónustulund konunnar sem svaraði.
Þáttinn í heild sinni má heyra hér að neðan.