Innlent

Ný kona í brúnni hjá borginni í kjaradeilunni við Eflingu

Heimir Már Pétursson skrifar
Rakel Guðmundsdóttir mætir til fundarins í morgun.
Rakel Guðmundsdóttir mætir til fundarins í morgun. Vísir/Vilhelm

Vonir eru bundnar við að hægt verði að klára stóra áfanga í samningaviðræðum aðildarfélaga BSRB við ríkið á fundum hjá Ríkissáttasemjara í dag og að samningar náist áður en verkföll eiga að hefjast á mánudag. Þá er betra hljóð í samningafólki Eflingar en oft áður undanfarna daga. 

Reykjavíkurborg hefur gert breytingar á samninganefnd sinni. 

Mikil fundahöld um kjarasamninga tug þúsunda launafólks fara fram í Karphúsinu í dag.Vísir/Egill

Mikil fundahöld um kjarasamninga tug þúsunda launafólks fara fram í Karphúsinu í dag. Í fyrrakvöld náðist stór áfangi í viðræðum BSRB við ríkið þegar samkomulag tókst um styttingu vinnutímans hjá vaktavinnufólki. 

Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB var vongóð um gang viðræðna þegar þær hófust á ný í morgun. En viðræðurnar fara bókstaflega fram á mörgum borðum, um sameiginleg mál allra og síðan mál einstakra félaga við ríki, Samband sveitarfélaga og borgina.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir er formaður BSRB.Vísir/Sigurjón

Stærsta sameiginlega málið er jöfnun launa opinberra starfsmanna við laun á almennum markaði sem samþykkt var að fara í þegar lífeyrisréttindi voru jöfnuð milli markaða.

„Ég vona að við munum ná saman í dag varðandi jöfnun launa. Hin málin eru til umræðu og það er svolítið langt á milli aðila ennþá. En svo er þetta auðvitað allt saman í heildarsamhengi. Þannig að þegar kemur að lokum og menn fara að velta fyrir sér hvernig þetta lítur út í heild sinni, þá skýrist það frekar,“ segir Sonja.

Það gefi aukið svigrúm í viðræðunum að samkomulag hafi tekist um vaktavinnuna.

„Þá hefur fólk tíma til að gefa sig betur að þessu sem eftir er. Við munum auðvitað funda langt fram á kvöld og yfir helgina og vonumst til að við klárum þetta áður en verkföll skella á,“ segir formaður BSRB

Málin að skýrast hjá Eflingu og borginni

Samninganefndir Eflingar og borgarinnar komu saman til fundar klukkan tíu eftir óvenju langan sameiginlega fund hjá Ríkissáttasemjara seinnipartinn í gær. Viðar Þorsteinsson framkvæmdastjóri Eflingar segir fæst orð þó bera mesta ábyrgð á þessum tímapunkti.

Viðar Þorsteinsson greip sér vatnsglas á leið til fundar við samninganefnd Reykjavíkurborgar.Vísir/Vilhelm

Er eitthvað samtal hafið sem hægt er að byggja á?

„Það er bara margt sem er að skýrast. Ég kannski segi ekki meira um það í bili.“

Heldur þú að þessi dagur verði góður?

„Þegar hlutirnir skýrast held ég að það sé af hinu góða,“ sagði Viðar rétt fyrir upphaf fundar í morgun.

Harpa Ólafsdóttir fer ekki lengur fyrir viðræðum Reykjavíkurborgar við Eflingu.Vísir

Harpa Ólafsdóttir fyrrverandi starfsmaður Eflingar sem sagði upp störfum þar þegar Sólveig Anna Jónsdóttir var kjörin formaður hafði farið fyrir samninganefnd borgarinnar þar til í gær. Þá tók Rakel Guðmundsdóttir lögmaður borgarinnar við því hlutverki en Harpa fer nú fyrir öðrum viðræðum borgarinnar í Karphúsinu.

Þið eruð auðvitað meðvituð um stöðuna annars staðar í þjóðfélaginu. Kannski helgin verði nýtt ef ríkir friður á milli ykkar?

„Já, já. Við erum bara eins og ávalt mjög tilbúin að leggja fullan kraft í það að ná raunverulegum árangri í viðræðum,“ segir Viðar Þorsteinsson.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×