Navalní kvartar undan rússneskum stjórnvöldum til Mannréttindadómstólsins Kjartan Kjartansson skrifar 6. mars 2020 14:06 Navalní segir að yfirvöld hafi tæmt og fryst bankareikninga hans og náinna ætttingja fyrr í vikunni. Hann hefur ítrekað sætt þvingunum yfirvalda sem hann segir ætla að stöðva stjórnmálabaráttu sína. Vísir/EPA
Alexei Navalní, leiðtogi rússnesku stjórnarandstöðunnar, lagði fram kvörtun til Mannréttindadómstóls Evrópu í dag vegna peningaþvættisrannsóknar sem rússnesk stjórnvöld hófu á honum. Hann heldur því fram að rannsókninni sé ætla að stöðva stjórnmálastarf hans. Rússnesk yfirvöld hafa ítrekað fangelsað Navalní fyrir að skipuleggja mótmæli undnafarin ár. Honum var jafnframt bannað að bjóða sig fram til forseta árið 2018 vegna dóms sem hann hlaut í fjársvikamáli sem Navalní hefur lýst sem pólitískum. Peningaþvættisrannsóknin sem beinist að samtökum Navalní hófst eftir að hann hvatti til mótmæla í ágúst. Mótmælin urðu þau stærstu um árabil á tímabili í fyrra. Navalní segir að yfirvöld hafi fryst og tæmt bankareikninga hans og náinna ættingja á þriðjudag, að því er segir í frétt Reuters. Sjá einnig: Rússnesk stjórnvöld brutu á leiðtoga stjórnarandstöðunnar „Ég hef ítrekað sætt ofsóknum rússneskra yfirvalda vegna stjórnmálastarfa minna,“ sagði Navalní vegna kvörtunarinnar sem hann og nokkrir bandamenn hans hafa sent inn til Mannréttindadómstólsins. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu í fyrra að stjórnvöld í Kreml hefðu brotið réttindi Navalní með því að hneppa hann í stofufangelsi og beita hann öðrum þvingunum árið 2014 með það fyrir augum að takmarka stjórnmálabaráttu hans.
Rússland Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Skafið og saltað Veður Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira