Viðskipti innlent

Skora á ráðherra að styðja einkarekna fjölmiðla

Kjartan Kjartansson skrifar
Framkvæmdastjóri fjölmiðla Sýnar er á meðal forsvarsmanna einkarekinna fjölmiðla sem skora á ráðherra að koma þeim til aðstoðar vegna þrenginga í heimfaraldri kórónuveirunnar.
Framkvæmdastjóri fjölmiðla Sýnar er á meðal forsvarsmanna einkarekinna fjölmiðla sem skora á ráðherra að koma þeim til aðstoðar vegna þrenginga í heimfaraldri kórónuveirunnar. Vísir/Vilhelm

Forsvarsmenn helstu einkareknu fjölmiðla á Íslandi skora á menntamála- og forsætisráðherra að styrkja rekstrargrundvöll þeirra svo þeir hafi möguleika á að standa af sér tekjutap vegna samdráttar í samfélaginu. Þörf sé á frekari aðgerðum en í þeim sem standa til í frumvarpi að breytingum á lögum um fjölmiðla.

Í bréfi sem forsvarsmenn Stöðvar 2 og Vodafone, Kjarnans, Árvakurs, Torgs, Stundarinn og Birtíngs útgáfufélags rita Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, og Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, skora þeir á ráðherranna að grípa til aðgerða þegar í stað.

Rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla segja þeir hafa verið óhagstætt og óheilbrigt undanfarin ár. Við því hafi átt að bregðast í frumvarpi menntamálaráðherra um breytingar á lögum um fjölmiðla sem var kynnt í lok árs í fyrra.

Í því var lagt til að einkareknir fjölmiðlar fengju tímabundinn stuðning í formi endurgreiðslu á hluta kostnaðar við að afla og miðla fréttum, fréttatengdu efni og umfjöllun um samfélagsleg málefni. Stuðningskerfið átti að gilda fyrir rekstrarárið 2019 og voru fjárhæðir eyrnamerktir einkareknum fjölmiðlum í fjárlögum. Fjölmiðlar hafi gert ráð fyrir fjármununum í áætlunum sínum.

Óvissa ríki nú um frumvarpið eftir að starfsáætlun þingsins var lögð til hliðar vegna kórónuveirufaraldursins. Sú óvissa bætist ofan á fyrirsjáanlegt tekjufall vegna samdráttar í nær öllum atvinnugreinum vegna heimsfaraldursins.

Forsvarsmenn miðlanna segja að staða þeirra hafi því aðeins versnað frekar á sama tíma og mikilvægi fjölmiðla hafi sjaldan verið meira en í því ástandi sem nú ríkir.

„Sterkir fjölmiðlar eru sérstaklega mikilvægir samfélaginu núna, bæði vegna viðurkennds almannavarnahlutverks og vegna aðhalds- og umræðuhlutverks þeirra á tímum hraðra lagabreytinga og fordæmalauss inngrips yfirvalda hér og annars staðar,“ segir í bréfi einkareknu fjölmiðlanna til ráðherranna.

Víðtækir erfiðleikar í hagkerfinu kalli ekki aðeins á aðgerðir til stuðnings fjölmiðlum sem byggjast á frumvarpi menntamálaráðherra sem er enn ósamþykkt heldur leggja forsvarsmennirnir áherslu á að ríkisstjórnin þurfi að beita sér fyrir frekari aðgerðum til að styðja einkarekna fjölmiðla til að mæta vanda sem að steðjar vegna faraldursins. Slíkar aðgerðir gætu verið tímabundnar.

Eyrún Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Kjarnans miðla, Haraldur Johannessen, framkvæmdastjóri Árvakurs, Jóhanna Helga Viðarsdóttir, forstjóri Torgs, Jón Trausti Reynisson, framkvæmdastjóri Stundarinnar, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Birtíngs útgáfufélags, og Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjölmiðla Stöðvar 2 og Vodafone, skrifa undir bréfið.

Vísir er í eigu Sýnar hf. sem á einnig vörumerkin Stöð 2 og Vodafone.


Tengdar fréttir

Ræddu fjölmiðlafrumvarp fram á nótt

Umræður um fjölmiðlafrumvarp mennta- og menningarmálaráðherra stóðu yfir á Alþingi til rúmlega tvö í nótt. Haldnir verða tveir þingfundir í dag til að unnt verði að ljúka umsamdri dagskrá þingsins fyrir jólafrí í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×