Sprittið búið og skólanum lokað í tvær vikur vegna veirunnar Kristín Ólafsdóttir skrifar 10. mars 2020 23:18 Edvard Dagur Edvardsson er á öðru ári í vefhönnun og nýmiðlun við Academy of Art-háskólann í San Fransisco. Aðsend
Íslenskur háskólanemi í San Fransisco í Kaliforníu býr sig nú undir tvær „skrýtnar“ vikur eftir að hefðbundnu skólahaldi var aflýst vegna kórónuveirunnar. Hann lýsir því að spritt sé uppurið í borginni en segir fólk þó almennt halda ró sinni. Áhrifa kórónuveirunnar gætir víða í Bandaríkjunum og smitum fjölgar hratt. 804 tilfelli kórónuveirunnar hafa verið staðfest í Bandaríkjunum frá og með deginum í dag, samkvæmt tölum frá John Hopkins-sjúkrahúsinu í Maryland-ríki. Þá eru 29 látnir af völdum veirunnar í Bandaríkjunum, þar af 24 í Washington. Tvö dauðsföll af völdum veirunnar eru skráð í Kaliforníu en neyðarástandi var lýst yfir í ríkinu í síðustu viku, í kjölfar fyrsta andlátsins. Þannig hefur verið gripið til nokkuð víðtækra varúðarráðstafana í Kaliforníu vegna veirunnar, nú síðast í gær þegar nokkrir af helstu háskólum ríkisins aflýstu hefðbundnu skólastarfi og færðu það yfir á netið. Á meðal umræddra skóla eru UC Berkely, UC San Diego, ríkisháskólarnir í San Francisco og San Jose, auk Santa Clara-háskólans. Ráðstafanirnar hafa þannig áhrif á þúsundir háskólanema í ríkinu. Edvard spilar fótbolta með liði skólans. Æfingar munu fara fram næstu tvær vikurnar þrátt fyrir varúðarráðstafanir skólayfirvalda en leikir verða haldnir án áhorfenda.Aðsend Allir með grímur og sprittið búið Þar á meðal er Íslendingurinn Edvard Dagur Edvardsson sem stundar nám í vefhönnun og nýmiðlun við Academy of Art-háskólann í miðborg San Fransisco. Edvard segir í samtali við Vísi að allar kennslustundir í skólanum næstu tvær vikurnar hafi verið færðar yfir á netið, skólabyggingum lokað og nemendur hvattir til að forðast fjölmenn mannamót. Edvard spilar jafnframt knattspyrnu með liði skólans en leikir liðsins næstu tvær vikur munu fara fram án áhorfenda. Hann veit þó ekki til þess að kórónuveirusmit hafi verið staðfest í skólanum. „Maður upplifir ekkert eitthvað „panic“ í borginni. Ég held þetta séu bara varúðarráðstafanir vegna útbreiðslu veirunnar,“ segir Edvard. Edvard ásamt vinum sínum í San Fransisco.Aðsend „Það skapaðist skrýtin stemning í gær þegar öllum var tilkynnt að það væri allt í einu komin tveggja vikna pása, allt farið á netið og skólabyggingum lokað. Það eru flestir með grímur. Sprittið er búið í öllum apótekum og búðum. Ég hef ekki séð það sjálfur en það voru einhverjir að tala um að fólk væri að birgja sig upp af mat í búðum, þannig að það er ekki allt til sem mann vantar. Þetta verða svolítið skrýtnar næstu tvær vikur. Þannig að maður verður bara að bíða og sjá hvað gerist.“ Áhrifa veirunnar hefur, líkt og áður segir, gætt víða í landinu. Nú síðast var þjóðvarðlið New York-ríkis kallað til í dag til að stemma stigu við útbreiðslu veirunnar í ríkinu. Borgin New Rochelle, sem stendur í grennd við New York-borg, hefur verið sett í hálfgerða einangrun vegna mikils fjölda smita sem þar hefur greinst. Þá tóku helstu hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum við sér í morgun eftir mestu lækkun sem sést hefur frá því í fjármálahruninu árið 2008 í gær. Donald Trump Bandaríkjaforseti boðaði í gær ýmsar aðgerðir til að draga úr efnahagslegum áhrifum kórónuveirunnar sem breiðist nú um heiminn.
Wuhan-veiran Bandaríkin Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Sex tilfelli kórónuveirunnar bætast við Heildarfjöldi smitaðra á Íslandi er nú orðinn 76. 10. mars 2020 18:12 Svona á að haga sér í sóttkví Um 600 manns eru í sóttkví hér á landi en hvernig á að haga sér í sóttkví? Hvað má og hvað má ekki gera? 10. mars 2020 13:00 Efasemdir um að aðgerðir Ítala séu vænlegar til árangurs Ítölsk stjórnvöld hafa sett ferða- og samkomubann á allt landið til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar en sérfræðingar efast um að það sé sjálfbært eða líklegt til að skila árangri. 10. mars 2020 11:13 Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira
Sex tilfelli kórónuveirunnar bætast við Heildarfjöldi smitaðra á Íslandi er nú orðinn 76. 10. mars 2020 18:12
Svona á að haga sér í sóttkví Um 600 manns eru í sóttkví hér á landi en hvernig á að haga sér í sóttkví? Hvað má og hvað má ekki gera? 10. mars 2020 13:00
Efasemdir um að aðgerðir Ítala séu vænlegar til árangurs Ítölsk stjórnvöld hafa sett ferða- og samkomubann á allt landið til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar en sérfræðingar efast um að það sé sjálfbært eða líklegt til að skila árangri. 10. mars 2020 11:13