Rann í gegnum hurðina og endaði í bílskúr nágrannans Kristín Ólafsdóttir skrifar 22. maí 2020 06:54 Talsvert tjón varð á bílnum og bílskúrnum. Vísir/Vilhelm
Umferðaróhapp varð í Árbænum á sjötta tímanum í gær þegar mannlaus bíll rann aftur á bak, braust í gegnum bílskúrshurð hjá nágranna og endaði loks inni á bílskúrsgólfi. Skemmdir urðu á bifreiðinni, bílskúrshurðinni og munum í bílskúrnum, til að mynda tjaldvagni, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Þá stóð lögregla að nokkuð umfangsmiklu eftirliti með umferð í bæði Ártúnsbrekku og á Kringlumýrarbraut við Fossvog milli klukkan 20 og fram undir morgun. Tíu ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Kringlumýrarbraut. Einn ökumaðurinn mældist á 106 kílómetra hraða, þar sem hámarkshraði er 80. Hann reyndist jafnframt aka ölvaður og sviptur ökuréttindum. Fjórir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í Ártúnsbrekku. Einn ökumaðurinn reyndist aðeins 17 ára og ók á 126 kílómetra hraða, þar sem hámarkshraði er 80. Málið var afgreitt með aðkomu forráðamanna og tilkynningu til Barnaverndar. Þá var 16 ára stúlka, sem aldrei hafði öðlast ökuréttindi, stöðvuð á rúntinum með vinkonu sinni. Málið var unnið með aðkomu forráðamanna og tilkynningu til barnaverndar.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira