Dökkar sviðsmyndir af Afríku: Hundruð þúsunda gætu dáið Samúel Karl Ólason skrifar 17. apríl 2020 13:45 Yfirvöld Egyptalands telja sig ekki geta beitt félagsforðun til að draga úr útbreiðslu veirunnar án þess að valda of miklum skaða á hagkerfi landsins. Því hefur verið gripið til þess ráðs að setja á útgöngubann á kvöldin. Þessi mynd var tekin í Kaíró í vikunni, skömmu áður en útgöngubann tók gildi. AP/Nariman El-Mofty
Hundruð þúsunda geta dáið vegna Covid-19 í Afríku á þessu ári. Skásta sviðsmyndin sem sett hefur verið upp af Sameinuðu þjóðunum og byggir á gögnum frá vísindamönnum Imperial College London segir að 300 þúsund muni deyja. Samkvæmt verstu sviðsmyndinni, sem felur í sér engar aðgerðir gegn útbreiðslu nýju kórónuveirunnar sem veldur Covid-19, munu 3,3 milljónir deyja og 1,2 milljarður manna smitast í heimsálfunni. Eins og staðan er í dag hafa rúmlega 18 þúsund smit verið staðfest og 942 eru dánir. Sérfræðingar hafa þó varað við því að Afríka sé vikum á eftir Evrópu varðandi dreifingu veirunnar og líkist fjölgun tilfella mjög þróunin eins og hún var í upphafi faraldursins í Evrópu, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar. Number of #COVID19 cases on the African continent rise to 18,000, with over 900 deaths. View country figures & more with the WHO African Region COVID-19 Dashboard: https://t.co/V0fkK8dYTg pic.twitter.com/Py2kdZzv18— WHO African Region (@WHOAFRO) April 17, 2020 Samkvæmt skýrslu Efnahagsnefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir Afríku segi að heilbrigðiskerfi Afríkuríkja muni ekki ráða við besta sviðsmyndina og hvað þá þær verri. Þar segir að ríkin þurfi 44 milljarða dala (um 6,3 billjónir króna) til að takast á við faraldurinn. Versta sviðsmyndin myndi kosta 446 milljarða dala. Í skýrslunni segir að fátækt, þéttbýli og útbreidd heilbrigðisvandamál geri Afríku sérstaklega viðkvæma gagnvart heimsfaraldri nýju kórónuveirunnar. Ekki eingöngu vegna útbreiðslu veirunnar heldur einnig vegna slæmra afleiðinga á hagkerfi heimsálfunnar. Sjá einnig: „Púðurtunnan“ Afríka ætti að „búa sig undir það versta“ Michel Yao, umsjónarmaður Afríku hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) segir að aðgerðir yfirvalda í Afríku gætu dregið úr fjölda smita. Hann sagði stofnunina gera ráð fyrir rúmlega tíu milljónum alvarlegra smita í heimsálfunni. Þá spá ætti þó eftir að fínstilla og vildi hann ekki segja blaðamanni AP fréttaveitunnar hvaðan hún væri fengin. Ætla að gefa verulega í Embættismenn í Afríku tóku höndum saman fyrr í vikunni og ákváðu að gefa verulega í varðandi skimun fyrir veirunni. Strax í næstu viku stendur til að framkvæma milljón prófa og allt að 15 milljónir á næstu þremur mánuðum. Afríka hefur þó setið eftir varðandi kaup á hlífðarbúnaði fyrir heilbrigðisstarfsmenn vegna gífurlegrar eftirspurnar í heiminum. Svipaða sögu er að segja af öndunarvélum og öðrum nauðsynlegum búnaði sem þarf vegna veirunnar. Því hafa ríki heimsálfunnar einnig tekið höndum saman við kaup slíks búnaðar.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira