Innlent

Annar hinna smituðu er með mótefni

Sylvía Hall skrifar
Tvö smit greindust á Keflavíkurflugvelli í gær.
Tvö smit greindust á Keflavíkurflugvelli í gær. Vísir/Vilhelm

Tveir reyndust vera smitaðir af kórónuveirunni við komuna til landsins í gær. Annar þeirra, erlendur ferðamaður frá Kaupamannahöfn, var þó með mótefni við veirunni. Því var um gamalt smit að ræða og þarf viðkomandi ekki í sóttkví.

Þetta kom fram á upplýsingafundi um opnun landamæra Íslands.

Hinn sem greindist var Íslendingur sem var einnig að koma frá Kaupmannahöfn. Hann var ekki með mótefni gegn veirunni og þarf því að fara í einangrun. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagðist ekki vita hver einkenni Íslendingsins væru, en hann væri þó ekki mjög veikur. 

Um ellefu hundruð ferðamenn komu til landsins í gær, þar af um hundrað börn sem eru undanþegin sýnatöku. Enginn einstaklingur valdi að fara í sóttkví og voru því sýni tekin úr 927 einstaklingum.

Á upplýsingafundi Almannavarna kom fram að sýnatökur í gær hafi gengið vel í meginatriðum þó að hnökrar hafi komið upp eins og búist var við. Það verði greitt úr þeim nú til þess að sýnatökurnar geti gengið vel fyrir sig.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×