Dagný skoraði þegar Selfoss vann Blika síðast fyrir sex árum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. júní 2020 14:30 Dagný Brynjarsdóttir stekkur hér hæst allra í fyrstu umferðinni á móti Fylki. Vísir/Daníel Þór
Selfoss tekur í kvöld á móti Blikum í fyrsta risaleiknum í Pepsi Max deild kvenna í fótbolta í sumar. Blikastúlkum var spáð Íslandsmeistaratitlinum í árlegri spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna en Selfossliðinu var aftur á móti spáð öðru sætinu. Blikar byrjuðu mótið á 3-0 sigri á FH en Selfossliðið náði ekki að fylgja eftir sigri í Meistarakeppninni og tapaði 1-0 fyrir Fylki í Árbænum. Selfoss er því enn að bíða eftir fyrsta markinu og fyrsta stiginu í Pepsi Max deild kvenna í ár. Breiðablik hefur haft góð tök á Selfossstelpum undanfarin sex ár eða síðan 10. júní 2014 þegar Selfoss fagnaði síðasti sigri í leik liðanna í efstu deild. Frá þeim leik hafa liðin mæst níu sinnum í efstu deild og Breiðablik hefur unnið sjö þeirra leikja en tveir hafa endað með jafntefli. Markatalan er 16-6 Blikum í vil. Dagný Brynjarsdóttir er nú komin aftur í Selfossliðið úr atvinnumennsku og hún var einmitt með Selfossliðinu í 3-2 sigrinum á Blikum fyrir rétt rúmum sex árum síðan. Dagný Brynjarsdóttir skoraði þá fyrsta mark Selfossliðsins en hin mörkin skoruðu þær Erna Guðjónsdóttir og Guðmunda Brynja Óladóttir. Erna er enn með Selfossi en Guðmunda er leikmaður KR. Báðir markaskorarar Blika í leiknum eru ekki lengur í liðinu, Aldís Kara Lúðvíksdóttir er farin aftur heim í FH og Guðrún Arnardóttir er atvinnumaður í Svíþjóð. Leikur Selfoss og Breiðabliks hefst klukkan 19.15 í kvöld og hann verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka Sjá meira