Körfubolti

Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump

Aron Guðmundsson skrifar
Spike Lee fer ekki fram hjá neinum á hliðarlínunni á leikjum New York Knicks í Madison Square Garden.
Spike Lee fer ekki fram hjá neinum á hliðarlínunni á leikjum New York Knicks í Madison Square Garden. Vísir/Getty

Kvikmyndagerðarmaðurinn Spike Lee, sem jafnframt er mikill stuðningsmaður ríkjandi NBA meistara New York Knicks, vill ekki sjá að leikmenn liðsins heimsækji Donald Trump, Bandaríkjaforseta í Hvíta húsið.

Nokkurs konar hefð hefur skapast fyrir því að meistaralið NBA deildarinnar fari á fund Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu. 

New York Knicks hefur fengið slíkt boð en ekki hefur nákvæm tímasetning á þeirri móttöku verið ákveðin. 

Forráðamenn Knicks hafa þegið boðið en einn litríkasti stuðningsmaður liðsins, Spike Lee, vill ekki sjá að liðið fari á fund Bandaríkjaforseta. Eigandi New York Knicks, James Dolan, er góður vinur Donald Trump.

„Hann getur ekki neytt þá til að mæta,“ sagði Spike Lee í viðtali við Variety um fyrirhugaða móttöku fyrir Knicks í Hvíta húsinu.

„Þeir fara ekki. Ég vona að þeir fari ekki.“

Hið sögufræga félag New York Knicks varð NBA meistari í fyrsta sinn í 53 ár eftir sigur á San Antonio Spurs í úrslitaeinvígi deildarinnar fyrr á árinu.  

Var um þriðja NBA meistaratitil félagsins að ræða. Hinir tveir komu árin 1970 og 1973. Donald Trump mætti einmitt á þriðja leikinn í úrslitaeinvígi New York Knicks og San Antonio Spurs fyrr á þessu ári. 

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×