Körfubolti

„Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Deandre Kane tók utan um Njarðvíkinginn Makye Richard og virtist hughreysta hann eftir galna ákvörðun Richard í leikslok. Richard átti stórleik en klúðraði á endanum möguleika Njarðvíkur á að vinna leikinn með því að taka lokaskotið langt fyrir aftan miðju þegar nægur tími var eftir.
Deandre Kane tók utan um Njarðvíkinginn Makye Richard og virtist hughreysta hann eftir galna ákvörðun Richard í leikslok. Richard átti stórleik en klúðraði á endanum möguleika Njarðvíkur á að vinna leikinn með því að taka lokaskotið langt fyrir aftan miðju þegar nægur tími var eftir. Sýn Sport

Njarðvíkingar áttu mjög góðan leik á heimavelli Íslandsmeistara Grindavíkur í síðustu umferð Bónusdeildar karla í körfubolta en þurftu samt að sætta sig við tap í framlengingu og vera því enn án sigurs eftir fjóra leiki. Körfuboltakvöld ræddi stöðuna á Njarðvíkurliðinu.

Sérfræðingarnir Teitur Örlygsson og Helgi Már Magnússon ræddu frammistöðu Njarðvíkurliðsins í leiknum. Makye Richard var með 44 stig og 8 stoðsendingar í leiknum en tók furðuskot í lok leiks langt fyrir aftan miðju þegar hann hafði mun meiri tíma en hann hélt hann hefði.

„Hann hefur möguleiki bara ekki áttað sig á því að klukkan stoppar eftir skoraða körfu og bara veður af stað og lætur vaða,“ sagði Helgi Már sem benti á það þegar Grindvíkingurinn Deandre Kane tók utan um hann þegar hann var að svekkja sig yfir þessari furðuákvörðun sinni.

Fegurð í þessu

„Það er nú samt fegurð í þessu að Kane sé að grípa hann þarna og svona stappa í hann stálinu,“ sagði Helgi og bætti við: „Þeir voru í algjöru basli með hann. Þannig að það er leiðinlegt að hann skyldi enda þetta svona,“ sagði Helgi.

Klippa: Körfuboltakvöld: Umræða um slaka byrjun Njarðvíkinga

„Ég held að hann hafi sannað það að þetta er hörkuleikmaður,“ sagði Teitur og báðir bentu á það að hann tapaði ekki einum bolta í leiknum.

Líka ánægður með hann í viðtalinu

„Þetta var náttúrulega bara magnaður leikur hjá honum og ég var líka ánægður með hann í viðtalinu. Þá bara tekur hann þessi mistök þarna í lok leiksins á sig og ber bara ábyrgð á því. Ég veit ekki hvað honum gekk til með þessu en þetta var hörkuskot og með smá heppni hefði Njarðvík unnið leikinn af því þeir tóku frákastið,“ sagði Teitur.

Stefán Árni benti á að þetta hefði verið besti leikur Njarðvíkinga til þessa í vetur.

„Þeir verða náttúrulega að nýta þennan leik og þetta er svona smá Pollýönnuleikur akkúrat núna. Liðið þarf að reyna að taka eitthvað jákvætt út úr þessu og þeir eru að spila betur,“ sagði Helgi og hrósaði David Okeke sem var með 29 stig í sínum fyrsta leik með Njarðvík.

„Þetta er leikur sem hefði getað stolið,“ sagði Helgi.

„Það er ekki endalaust hægt að vera í einhverjum Pollýönnuleik. Þú veist, þeir eru 0 og 4. Þú veist, það er ekki hægt að segja og fela sig á bak við það: „Heyrðu, við erum búnir að vera góðir í þrem leikjum og við hefðum getað unnið þá,“ sagði Teitur sem skilur pirringinn í Rúnari Inga Erlingssyni þjálfara.

Verða bara að vera sterkir

„Njarðvíkingarnir verða bara að vera sterkir. Þeir verða bara að þjappa sér saman núna og halda áfram að reyna að vera betri, læra að loka leikjum,“ sagði Teitur og hélt áfram:

„Njarðvík hefði þurft svo lítið í viðbót til þess að vinna þennan leik og á meðan þeir trúa því og fara inn á næstu æfingu með þessa trú um að það styttist og vonandi bara strax í næsta leik komi fyrsti sigurinn,“ sagði Teitur sem vildi vera jákvæður þrátt fyrir erfiða stöðu í töflunni. Það má horfa á alla umræðuna um Njarðvík hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×