Innlent

Kjara­deilu sjúkra­liða og SFV til ríkis­sátta­semjara

Atli Ísleifsson skrifar
Kjarasamningur deiluaðila rann út 31. mars 2019.
Kjarasamningur deiluaðila rann út 31. mars 2019. Getty

Máli Sjúkraliðafélags Íslands og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu hefur verið vísað til ríkissáttasemjara. Kjarasamningur deiluaðila rann út 31. mars 2019.

Á heimasíðu Sjúkraliðafélags Íslands (SLFÍ) segir að því miður hafi viðræður samningsnefnda ekki borið tilætlaðan árangur þrátt fyrir ítrekaða fundi.

„Viðbrögð SFV hafa komið SLFÍ verulega á óvart í ljósi þess að samningar við aðra viðsemjendur náðust fyrir alllöngu.

Í ljósi þeirra viðbragða og stöðunnar í lok árangurslauss samningafundar hefur kjaramálanefnd SLFÍ því ákveðið að vísa deilunni til ríkissáttasemjara.

Tilkynning þess efnis hefur nú verið send sáttasemjara og þess er vænst að hann taki málið fyrir á næstu dögum,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×