Ók vespunni á þann sem tilkynnti þjófnaðinn Kristín Ólafsdóttir skrifar 29. júní 2020 06:25 Maðurinn sem reyndi að stela ökutækjunum verður kærður fyrir líkamsárás. Vísir/vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á sjöunda tímanum í gær ungan mann sem staðinn var að þjófnaði á ökutækjum, þremur vespum og einum barnakrossara, í Breiðholti. Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafi ekið vespu á þann sem tilkynnti þjófnaðinn til lögreglu og „sparkaði ítrekað er hann reyndi að komast undan“. Maðurinn verður kærður fyrir líkamsárás. Þá handtók lögregla meintan fíkniefnasala eftir að afskipti voru höfð af honum og öðrum manni þar sem þeir sátu í bifreið í Árbæ á tíunda tímanum í gærkvöldi. Hinn meinti fíkniefnasali reyndi að hlaupa af vettvangi en var stöðvaður og vistaður í fangageymslu. Í dagbók lögreglu segir að hann verði kærður fyrir vörslu og sölu fíkniefna, sem og að fara ekki að fyrirmælum lögreglu. Meintur kaupandi, sem var ökumaður bifreiðarinnar, afhenti lögreglu fíkniefni og verður kærður fyrir vörslu þeirra. Þá lagði lögregla hald á bíllyklana þar sem ökumaðurinn var undir áhrifum fíkniefna en þó ekki gripinn við akstur. Þá stöðvuðu lögreglumenn ræktun fíkniefna í tvígang í gærkvöldi, annars vegar í fjölbýlishúsi í miðbænum og hins vegar í fjölbýlishúsi í Grafarvogi. Maður var handtekinn á vettvangi ræktunarinnar í miðbænum en var laus að lokinni yfirheyrslu. Lagt var hald á sextán plöntur, sem og búnað til ræktunar. Á síðarnefnda staðnum var einnig lagt hald á plöntur og búnað. Bifreð var ekið á tré í garði við fjölbýlishús í Breiðholti á tíunda tímanum. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur, sem og akstur án ökuréttinda. Hann var vistaður í fangageymslu.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira