Voru ekki í sóttkví en hafa samt ekki spilað deildarleik í tuttugu daga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júlí 2020 15:00 Frá síðasta leik Þór/KA liðsins í Pepsi Max deildinni sem var á móti Val á Hlíðarenda fyrir tuttugu dögum síðan. Vísir/Vilhelm Þór/KA fær FH í heimsókn í kvöld í 6. umferð Pepsi Max deildar kvenna. Þetta verður samt bara fjórði leikur norðanliðsins í deildinni. Leikurinn fer fram á Þórsvelli á Akureyri og hefst klukkan 18.00. Þór/KA byrjaði Pepsi Max deildina frábærlega með því að vinna tvo fyrstu leikina með markatölunni 8-1. Þriðji leikurinn fór hins vegar illa þegar liðið steinlá 6-0 á móti Íslandsmeisturum Vals á Hlíðarenda. Þór/KA hefur ekki spilað deildarleik síðan en lék reyndar í Mjólkurbikarnum um síðustu helgi eins og öll hin liðin. Þór/KA var samt ekki sent í sóttkví eins og lið Breiðabliks KR og Fylkis. Það hittist bara þannig á að leikir liðsins voru á móti liðunum í sóttkví. Þetta þýðir að Þór/KA konur eru í kvöld að leika sinn fyrsta deildarleik í tuttugu daga. Þær hafa því fengið mjög langan tíma til að hugsa um það sem fór úrskeiðis á Hlíðarenda. Þór/KA vann 1-0 sigur á Keflavík í 16 liða úrslitum Mjólkurbikarsins á laugardaginn og hefur því unnið alla þrjá heimaleiki sumarsins. Mótherjar kvöldsins úr FH komust líka áfram í átta liða úrslit Mjólkurbikarsins en þær eru aftur á móti ennþá stigalausar eftir fjóra leiki í Pepsi Max deildinni. Þrír aðrir leikir fara fram í Pepsi Max deild kvenna í kvöld. ÍBV tekur á móti Breiðabliki klukkan 17.30 á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum og klukkan 19.15 mætast Stjarnan og KR í Garðabæ og Þróttur tekur á móti Selfossi í Laugardalnum. KR og Breiðablik eru þar að spila sína fyrstu deildarleiki í þrjár vikur en Fylkiskonur þurfa að bíða þar til á morgun eftir sínum fyrsta deildarleik. Valur tekur þá á móti Fylki á Hlíðarenda og verður leikurinn í beinni á Stöð 2 Sport. Bið liðanna í Pepsi Max deild kvenna eftir síðasta deildarleik: 21 dagur - KR (Fór í sóttkví) 21 dagur - Breiðablik (Fór í sóttkví) 21 dagur - Fylkir (Fór í sóttkví) 20 dagar - Þór/KA 14 dagar - ÍBV 13 dagar - Selfoss 8 dagar - Valur 8 dagar - Stjarnan 8 dagar - FH 8 dagar - Þróttur R. Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira
Þór/KA fær FH í heimsókn í kvöld í 6. umferð Pepsi Max deildar kvenna. Þetta verður samt bara fjórði leikur norðanliðsins í deildinni. Leikurinn fer fram á Þórsvelli á Akureyri og hefst klukkan 18.00. Þór/KA byrjaði Pepsi Max deildina frábærlega með því að vinna tvo fyrstu leikina með markatölunni 8-1. Þriðji leikurinn fór hins vegar illa þegar liðið steinlá 6-0 á móti Íslandsmeisturum Vals á Hlíðarenda. Þór/KA hefur ekki spilað deildarleik síðan en lék reyndar í Mjólkurbikarnum um síðustu helgi eins og öll hin liðin. Þór/KA var samt ekki sent í sóttkví eins og lið Breiðabliks KR og Fylkis. Það hittist bara þannig á að leikir liðsins voru á móti liðunum í sóttkví. Þetta þýðir að Þór/KA konur eru í kvöld að leika sinn fyrsta deildarleik í tuttugu daga. Þær hafa því fengið mjög langan tíma til að hugsa um það sem fór úrskeiðis á Hlíðarenda. Þór/KA vann 1-0 sigur á Keflavík í 16 liða úrslitum Mjólkurbikarsins á laugardaginn og hefur því unnið alla þrjá heimaleiki sumarsins. Mótherjar kvöldsins úr FH komust líka áfram í átta liða úrslit Mjólkurbikarsins en þær eru aftur á móti ennþá stigalausar eftir fjóra leiki í Pepsi Max deildinni. Þrír aðrir leikir fara fram í Pepsi Max deild kvenna í kvöld. ÍBV tekur á móti Breiðabliki klukkan 17.30 á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum og klukkan 19.15 mætast Stjarnan og KR í Garðabæ og Þróttur tekur á móti Selfossi í Laugardalnum. KR og Breiðablik eru þar að spila sína fyrstu deildarleiki í þrjár vikur en Fylkiskonur þurfa að bíða þar til á morgun eftir sínum fyrsta deildarleik. Valur tekur þá á móti Fylki á Hlíðarenda og verður leikurinn í beinni á Stöð 2 Sport. Bið liðanna í Pepsi Max deild kvenna eftir síðasta deildarleik: 21 dagur - KR (Fór í sóttkví) 21 dagur - Breiðablik (Fór í sóttkví) 21 dagur - Fylkir (Fór í sóttkví) 20 dagar - Þór/KA 14 dagar - ÍBV 13 dagar - Selfoss 8 dagar - Valur 8 dagar - Stjarnan 8 dagar - FH 8 dagar - Þróttur R.
Bið liðanna í Pepsi Max deild kvenna eftir síðasta deildarleik: 21 dagur - KR (Fór í sóttkví) 21 dagur - Breiðablik (Fór í sóttkví) 21 dagur - Fylkir (Fór í sóttkví) 20 dagar - Þór/KA 14 dagar - ÍBV 13 dagar - Selfoss 8 dagar - Valur 8 dagar - Stjarnan 8 dagar - FH 8 dagar - Þróttur R.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira