Valsmenn fundu framherja í Danmörku Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. júlí 2020 13:22 Kasper Høgh í Valstreyjunni. mynd/valur
Valur, topplið Pepsi Max-deildar karla, hefur fengið danska framherjann Kasper Høgh á láni frá Randers. Lánssamningurinn gildir út tímabilið. Valsmenn hafa verið í leit að framherja sem gæti létt undir með Patrick Pedersen. Þeir sóttu enn á ný á dönsk mið en Høgh verður fjórði Daninn í leikmannahópi Vals. Fyrir eru þar Pedersen, Rasmus Christiansen og Lasse Petry. Høgh, sem er nítján ára, hefur spilað tíu leiki með Randers í dönsku úrvalsdeildinni. Þá hefur hann farið mikinn með U-19 ára liði Randers og skorað 48 mörk í 47 leikjum með því. Høgh hefur leikið tíu leiki og skorað þrjú mörk fyrir yngri landslið Danmerkur. Pedersen missti af leik Vals og Fjölnis á mánudaginn vegna meiðsla. Hann ætti hins vegar að vera klár fyrir leikinn gegn ÍA í sextán liða úrslitum Mjólkurbikarsins á föstudaginn. Pedersen hefur skorað sex mörk í Pepsi Max-deildinni og er markahæsti leikmaður Vals í sumar. Valur er með tveggja stiga forskot á toppi Pepsi Max-deildarinnar. Valsmenn hafa unnið þrjá leiki í röð. Høgh gæti þreytt frumraun sína með Val þegar liðið sækir FH heim 5. ágúst, miðvikudaginn í næstu viku.
Pepsi Max-deild karla Valur Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira