Þrjátíu í sóttkví á Akureyri eftir að sjúkraþjálfari smitaðist Kristín Ólafsdóttir skrifar 4. ágúst 2020 12:33 Frá Akureyri. Vísir/vilhelm
Sjúkraþjálfari hjá sjúkraþjálfunarstöðinni Stíg á Akureyri greindist með Covid-19 á laugardag. Í kjölfarið voru þrjátíu skjólstæðingar hans sendir í sóttkví. Þetta staðfestir Þuríður Sólveig Árnadóttir eigandi Stígs í samtali við Vísi en RÚV greindi fyrst frá málinu í dag. Þuríður segir að sjúkraþjálfarinn sem greindist með Covid hafi verið sá eini í starfsliðinu sem ekki var í sumarfríi. Sem betur fer bjóði kerfi stofunnar upp á það að strax var hægt að sjá hverjir hefðu verið í meðferð hjá umræddum sjúkraþjálfara. Skjólstæðingarnir, þrjátíu talsins, hafi því verið settir í sóttkví og smitrakning nú í gangi. Þuríður segir að sjúkraþjálfarinn viti ekki hvar hann smitaðist. Þá viti hún ekki til þess að nokkur skjólstæðingur hafi fengið einkenni Covid. Stígur verður lokaður næstu vikuna hið minnsta vegna sumarleyfa en starfsemi hefst að nýju að þeim loknum. „Og allt í góðum málum og samkvæmt reglum,“ segir Þuríður. Tveir eru í einangrun með Covid-19 og þrjátíu og fimm í sóttkví á Norðurlandi eystra. Fyrst greindist erlendur ferðamaður með kórónuveiruna á föstudag og hann dvelur í farsóttarhúsi á Akureyri með fjölskyldu sinni, sem þó er ekki með veiruna. Sjúkraþjálfarinn greindist með veiruna á laugardag, líkt og áður segir. Fyrirsögn fréttarinnar hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Akureyri Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sjá meira