Íslandsmeistararnir sluppu með skrekkinn í Grindavík | Úrslit kvöldsins Anton Ingi Leifsson skrifar 8. janúar 2020 21:06 Helena var öflug í kvöld eins og svo oft áður. vísir/bára
Íslandsmeistarar Vals í Dominos-deild kvenna lentu í hörkuleik gegn nýliðum Grindavík í kvöld en þær höfðu betur að endingu, 74-73. Jafnræði var með liðunm allan leikinn og voru heimastúlkur yfir í hálfleik, 40-35. Góður þriðji leikhluti lagði grunninn að sigri Vals. Þær unnu hann með sex stiga mun en Jordan Airess mistókst að jafna muninn fyrir Grindavík á síðustu sekúndunni. Bríet Sif Hinriksdóttir var aftur frábær í liði Grindavíkur. Hún skoraði 25 stig og tók ellefu fráköst og Jordan Airess Reynolds gerði sextán stig, tók tíu fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Kiana Johnson var stigahæst hjá Val með 22 stig. Að auki tók hún þrettán fráköst og gaf átta stoðsendingar. Valur er á toppi deildarinnar með fjögurra stiga forskot á KR en Grindavík er á botninum með tvö stig. Snæfell vann sigur á Breiðabliki, 67-61, er liðin mættust í Hólminum í kvöld. Snæfell var 39-31 yfir í hálfleik en Blikarnir skoruðu einungis tíu stig í fyrsta leikhlutanum. Gunnhildur Gunnarsdóttir skoraði 23 stig, tók níu fráköst og gaf fjórar stoðsendingar í liði Snæfells en Amarah Kiyana Coleman bætti við átján stigum. Danni L Williams var í sérflokki í liði Blika. Hún gerði 34 stig, tók tíu fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Þórdís Jóna Kristjánsdóttir skoraði tíu stig og tók sjö fráköst. Breiðablik er í næst neðsta sæti deildarinnar með fjögur stig en Snæfell er sæti ofar með átta stig. Skallagrímur gerði sér lítið fyrir og vann Hauka á heimavelli, 73-59, en tölfræði hefur ekki borist úr leiknum. Liðin eru því jöfn í 4. og 5. sæti deildarinnar en Haukarnir höfðu unnið fimm leiki í röð fyrir leik kvöldsins.KR vann svo Keflavík í stórleik umferðarinnar.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira