Angraði og olli hræðslu meðal gangandi í miðborginni Atli Ísleifsson skrifar 2. janúar 2020 06:06 Alls voru vistaðir átta manns á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í nótt vegna ýmissa mála. Vísir/Vilhelm
Lögregla á höguðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi karlmann í miðborginni vegna mikillar ölvunar og að hann hafði ekki farið eftir fyrirmælum lögreglumanna. Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafði áður verið tilkynntur af vegfarendum þar sem hann var að angra og valda hræðslu meðal gangandi vegfarenda. Segir að hann hafi verið færður á lögreglustöð til vistunar þar vegna ölvunarástands. Þá segir frá því að annar maður hafi verið handtekinn í miðborginni skömmu eftir klukkan ellefu í gær vegna gruns um líkamsárás. Hann var fluttur í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Á þriðja tímanum í nótt var ökumaður stöðvaður í miðborginni eftir að hafa ekið gegn rauðu ljósi á gatnamótum. „Maðurinn var handtekinn, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn fyrir sviptur ökuréttindum vegna eldra máls. Maðurinn var færður á lögreglustöð og var laus eftir sýna- og skýrslutöku.“ Lögregla á höfuðborginni þurfti einnig að hafa afskipti af manni sem gerði það að leik sínum að setja flugelda í ruslatunni og valda skemmdum. Var hann kærður fyrir eignaspjöll. Lögreglumenn í öllum hverfum þurftu að sinna ellefu tilfellum þar sem unglingar voru að valda ónæði með því að nota flugelda á óleyfilegum tíma samkvæmt reglugerð um skotelda (frá kl. 22:00 til 10:00 daginn eftir). Alls voru vistaðir átta manns á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í gærkvöldi og í nótt vegna ýmissa mála.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Sjá meira