Rannsókn Wikborg Rein á Samherja ljúki fyrir apríl Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. janúar 2020 20:15 Samherji blés til eigin rannsóknar á þeirri mynd sem dregin var upp af félaginu í Samherjaskjölunum. Vísir/Sigurjón
Stjórnvöld ætla að leggja meira fé til skattrannsókna í kjölfar Samherjamálsins. Norska lögmannsstofan sem aðstoðar Samherja í rannsókn sinni gerir ráð fyrir að skila niðurstöðum sínum innan þriggja mánaða og segist Samherji ætla að endurskoða gildi sín og menningu.Stjórnvöld tilkynntu í morgun að fjármagn til Skattsins, embætti skattrannsóknarstjóra og héraðssaksóknara verði aukið um 200 milljónir króna á þessu ári, vegna aukinnar áherslu á eftirlit og varnir gegn peningaþvætti, skattrannsóknir og skatteftirlit. Útspil stjórnvalda er í samræmi við fimmta lið aðgerðaáætlunar ríkisstjórnarinnar til að auka traust á íslensku atvinnulífi eftir Samherjamálið, sem skattrannsóknarstjóri og héraðssaksóknari eru einmitt með til rannsóknar. Fleiri eru þó með starfsemi Samherja til skoðunar, til að mynda Samherji sjálfur sem réðst í eigin úttekt eftir afhjúpun Samherjaskjalanna og fékk til liðs við sig norsku lögmannsstofuna Wikborg Rein. Frá skrifstofum Wikiborg Rein, einnar stærstu lögmannsstofu Noregs.skjáskot/wikborg rein Rannsókin sjálfstæð „að stærstum hluta“ Í samskiptum við fréttastofu segir lögmannsstofan að megináhersla rannsóknarinnar hafi verið að teikna upp allar greiðslur sem Samherji innti af hendi í tengslum við starfsemi félagsins í Namibíu. Wikborg Rein segir að rannsókn stofunnar sé að „stærstum hluta“ sjálfstæð, framkvæmd án aðkomu starfsmanna Samherja. Því til staðfestingar nefnir Wikborg Rein að öll viðtöl séu framkvæmd af lögmönnum stofunnar án þess að fulltrúar Samherja komi þar nálægt. Að auki reyni stofan eftir fremsta megni að „sannreyna sjálfstætt“ öll gögn sem þeim berast. Ekki sé þó tímabært að sögn stofunnar að draga endanlegar ályktanir um niðurstöður rannsóknarinnar á þessari stundu. Wikborg Rein áætlar að rannsókn þess verði svo gott sem lokið fyrir apríl næstkomandi. Þá megi ætla að niðurstöðurnar verði kynntar skattrannsóknarstjóra og héraðssaksóknara.Sjá einnig: Verjast mútum, hagsmunaárekstrum og auka gagnsæi stærri fyrirtækjaRannsóknin hefur verið gagnrýnd því það þyki ekki trúverðugt aðWikborg Rein skuli rannsaka viðskiptavin sinn, þann sem greiðir fyrir rannsóknina. Björgólfur Jóhannesson starfandi forstjóri Samherjahefur svarað efasemdum á þá leiðað ráðningarsamband lögmannsstofunnar og Samherja sé það sama og þegar endurskoðendur undirriti ársreikninga fyrirtækja. Traustið sé ofar öllu.Samherji greindi frá því í gærað til standi aðendurmeta gildi félagsins, menningu þess og starfsvenjur. Að því loknu verði innleitt nýtt kerfi til að fyrirbyggja spillingu og peningaþvætti. Kerfið er sambærilegt þeim sem önnur stórfyrirtæki hafi innleitt, jafnt innlend sem útlensk.Talsmaður Samherja segir í skriflegu svari til fréttastofu að hið nýja kerfið muni ná yfir alla starfsemi félagsins auk dótturfélaga. Ásakanir á hendur Samherja vegna starfseminnar í Namibíu verði leiðarstef vinnunnar sem framundan er.
Samherjaskjölin Sjávarútvegur Tengdar fréttir „Samherji í Íslandi er komið í rasshaft“ Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvort Þorsteinn Már Baldvinsson muni segja sig frá stjórnarformennsku í Framherja í Færeyjum á meðan rannsókn á starfsháttum Samherja í Namibíu stendur yfir. 16. nóvember 2019 11:55 Ríkisstjórn kynnir aðgerðir vegna Samherjamálsins: Verjast mútum, hagsmunaárekstrum og auka gagnsæi stærri fyrirtækja Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að grípa til aðgerða í því skyni að auka traust á íslensku atvinnulífi. Um er að ræða viðbrögð í kjölfar Samherjamálsins. 19. nóvember 2019 12:02 Björgólfur furðar sig á gagnrýni á innri rannsókn Samherja Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja, líkir sambandi fyrirtækisins við norsku lögmannsstofuna Wikborg Rein, sem rannsaknar starfsemi Samherja í Namibíu, við ráðningarsambandið sem er við lýði þegar endurskoðendur undirriti ársreikninga fyrirtækja. 21. nóvember 2019 06:28 Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira
„Samherji í Íslandi er komið í rasshaft“ Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvort Þorsteinn Már Baldvinsson muni segja sig frá stjórnarformennsku í Framherja í Færeyjum á meðan rannsókn á starfsháttum Samherja í Namibíu stendur yfir. 16. nóvember 2019 11:55
Ríkisstjórn kynnir aðgerðir vegna Samherjamálsins: Verjast mútum, hagsmunaárekstrum og auka gagnsæi stærri fyrirtækja Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að grípa til aðgerða í því skyni að auka traust á íslensku atvinnulífi. Um er að ræða viðbrögð í kjölfar Samherjamálsins. 19. nóvember 2019 12:02
Björgólfur furðar sig á gagnrýni á innri rannsókn Samherja Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja, líkir sambandi fyrirtækisins við norsku lögmannsstofuna Wikborg Rein, sem rannsaknar starfsemi Samherja í Namibíu, við ráðningarsambandið sem er við lýði þegar endurskoðendur undirriti ársreikninga fyrirtækja. 21. nóvember 2019 06:28