Handtóku mann á leiðinni úr innbroti og fundu mikið magn af þýfi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 27. febrúar 2020 09:09 Lögregla á Suðurnesjum rannsakar málið. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á Suðurnesjum handtók í nótt mann sem var á göngu með bakpoka og þótti grunsamlegur. Maðurinn viðurkenndi að vera á leið úr innbroti og vísaði lögreglu að lokum á mikið magn af þýfi sem talið er koma úr innbrotahrinu sem lögregla hefur haft til rannsóknar að undanförnu. Frá þessu er greint á Facebook-síðu lögreglunnar þar sem segir að lögreglumenn á vakt hafi kannast við manninn er hann var á göngu með bakpokann í nótt. Strax kviknaði grunur um að um væri að ræða manninn sem lögregla hefur leitað að í tengslum við innbrotahrinu. Fengu lögreglumenn að skoða í bakpokann og segir í Facebook-færslunni að hann hafi „augljóslega ekki“ verið í eigu mannsins, sem var handtekinn. Viðurkenndi hann þá að hann væri á leiðinni úr innbroti. Vísaði hann lögreglu á heimili sitt þar sem fannst mikið magn af veiðidóti, verkfærum og öðrum munum sem taldir eru þýfi. Annar maður var í íbúðinni og var hann handtekinn, grunaður um að tengjast innbrotunum. Verða mennirnir yfirheyrðir síðar í dag. Unnið er að því að skrá niður þá muni sem fundust.
Lögreglumál Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Sjá meira