Opið bréf til Katrínar Jakobsdóttur og Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur Margrét Kristín Blöndal skrifar 6. mars 2020 11:30 Enn reyni ég að ná sambandi við ykkur og nú í gegnum fjölmiðla þar sem tölvupóstar mínir, Facebook-skilaboð og símhringingar til ykkar hafa ekki fangað athygli ykkar enn. Erindi mitt við ykkur varðar manneskjur. Bæði börn og fullorðið fólk. Litlu systkinin Ali, níu ára, Kayan, fimm ára, Saju, fjögurra ára og Jadin, eins árs og unga foreldra þeirra sem sækja átti einmitt þarliðna nótt og reka úr landi. Svo eru það systurnar Rita, fimm ára og Fatima, átta ára, þær eru hérna með pabba sínum Ali, frænku sinni Jwan sem er líka átta ára, foreldrum hennar og aldraðri ömmu sem Fatima heitir í höfuðið á. Þessi litlu börn og fjölskyldur þeirra á að senda í viðurstyggilegar og stórhættulegar aðstæður til Grikklands. Það hefur þeim verið sagt. Mér er kunnugt um að fleiri barnafjölskyldur eiga slíkan flutning fyrir dyrum í næstu viku. Um mál þeirra hefur þegar verið fjallað í íslenskum fjölmiðlum. Starf og ákvarðanir Útlendingastofnunnar eru á ykkar ábyrgð ágæta Katrín og Áslaug Arna. Ég heimsótti þessar fjölskyldur um daginn og þáði kaffisopa. Það var afar ánægjulegt að hitta þau og gestrisnin með ólíkindum. Þau sögðu mér af sér og ég af mér, til dæmis það að ég væri móðir þriggja barna sem væru nú flest orðin fullorðin nema eitt. Ég sagði þeim líka frá því, eftir því sem á samtalið leið að ég ætti von á barnabarni og þá fóru þau fram á að fá að fylgjast með því þau vildu fá að gefa því gjöf. Þau sögðu mér svo, aðeins af sér, bara svona í grófum dráttum við þessi fyrstu kynni okkar. Þau höfðu sum sé flúið frá Írak fyrir rúmlega tveimur árum, og með herkjum fengið far með litlum báti sem siglt var til Grikklands. Á siglingunni yfir hafið var fleira örvæntingarfullt fólk á flótta eins og þau, sem hélt í vonina um að einhverskonar öryggi og jafnvel bjartari framtíð biði þeirra á áfangastað. Þau sögðu mér líka frá því að á leiðinni hefði báturinn orðið of þungur og þá hefði fólki af handahófi verið hrint frá borði til þess að létta fleygið. Þær manneskjur drukknuðu að sjálfsögðu. Upp á það horfðu börnin, foreldrar þeirra og amma. Ég hugsaði með hryllingi, hvers konar sálrænar afleiðingar hljótast af slíkri reynslu fyrir börnin og allt fólkið um borð? Sennilega eitthvað sem ekkert þeirra nær sér af nokkurntíma. Þegar til Grikklands kom var þeim komið fyrir í flóttamannabúðum, en þar bjuggu þá þegar tvöþúsund og fimmhundruð manneskjur í einhversskonar hreysum, þar sem lök og pappírs-eða plastdruslur skilja að litlar þröngar kytrur, og öll fjölskyldan bjó þar í kös, hvert ofan í öðru. Í búðunum var enga læknisþjónustu að fá, hreinlætisaðstaða var engin þar sem tvö þúsund manns þurftu að deila tveimur klósettum! Það þýðir að mörg hundruð manns bíða í röð allan sólarhringinn eftir að komast á klósettið. Þau sýndu mér myndir af því hvernig umhorfs var hjá þeim þegar allt, bókstaflega allt, fer á flot í rigningum og þau liggja á jörðinni í drullu og skít því ekkert er rúmið, höfum það í huga. Skólpið flæðir bara út um allt. Enginn skóli er starfræktur fyrir börnin. Engin vinna í boði fyrir þá sem fullorðnir eru. Í flóttamannabúðum er ekkert. Engin framtíð. Aðeins eymd, hvern einasta dag. Ég fór að velta ýmsu fyrir mér á meðan ég sat og hlýddi á frásögnina. Endurómurinn úr hádegisfréttunum sem höfðu sagt frá útbreiðslu Covid19 veirunnar hljómaði í höfði mér. Hvernig ástand mun skapast í þessum búðum sem íslenskum yfirvöldum finnst ásættanlegur kostur fyrir þessa vini okkar, ekki ef, heldur þegar, Covid19 vírusinn breiðist þar út? Getum við yfir höfuð ímyndað okkur glundroðann þá, hryllinginn? Mér leikur forvitni á að vita og spyr ykkur stöllur, Áslaugu Örnu og Katrínu, sem farið fyrir ríkisstjórninni og eruð einnig í forsvari fyrir þennan málaflokk, nú á okkar víðsjárverðu tímum, minnug þess að heyra þig, Katrín lýsa því yfir í fréttum fyrir tveimur, þremur dögum að þú og þeir aðilar sem þú værir í samskiptum við væru algerlega sammála um eitt og það væri að setja almannahag í forgang. Gildir almannahagur ekki um alla hér á landi? Ofan á þær óboðlegu ógeðslegu aðstæður sem bíða barnanna í flóttamannabúðum, viðgengst þar gríðarlegt ofbeldi sem fer vaxandi dag frá degi. Nú berast fréttir daglega af því að lögregla og almenningur í Grikklandi ráðist á flóttafólk og beiti það hryllilegu ofbeldi. Þann sama dag og þér var, Katrín tíðrætt um almannahag var flóttamaður í Grikklandi skotinn til bana. Rauði krossinn og Unicef hafa skorað á ykkur yfirvöld að hætta við að senda blásaklaus börnin og fjölskyldur til þessa helvítis sem þar er. Ég, þið báðar, hver einasti ráðherra í ykkar ríkisstjórn, allt starfsfólk Útlendingastofnunar, hver einasti fulltrúi ykkar í kærunefnd útlendingamála sem og allur almenningur veit upp á hár hvað bíður barnanna og foreldra þeirra eftir að lögreglan sækir þau að ykkar skipan og dregur þau nauðug um borð í flug til Grikklands í skjóli nætur. Spurningin sem brennur á vörum okkar almennings er: Hvernig er mögulegt að hafa þessa afstöðu til annars fólks? Hvernig getið þið hugsað ykkur að senda Ali, Kayan, Saja og Jadin, Fatimu, Jwan og Ritu með foreldrum sínum og ömmu í þetta skelfingarástand? Þar munu þau standa allslaus, án nokkurrar hjálpar, skelfingu lostin, í algerri örvæntingu. Hvað gerist, ef þið beitið ykkur hörðu og reynið að setja ykkur í fótspor þeirra, Bærist eitthvað innra með ykkur? Þið og ríkisstjórnin öll berið ábyrgð á þessari ákvörðun. Þið farið með æðsta vald og getið auðveldlega komið í veg fyrir þetta. Hægt er hér á landi að leggja fram frumvarp og fá það samþykkt með hraði þegar mikið liggur við. Skemmst er að minnast frumvarps Kristjáns Þórs Júlíussonar sem hann lagði fram rétt eftir hádegi í byrjun október 2018 og fékk það samþykkt fyrir tíu sama kvöld. Þau vinnubrögð voru fordæmisgefandi og þá voru ekki mannslíf eða velferð fólks í húfi heldur snerist frumvarpið um „bráða“nauðsyn breytinga á lögum um FISKELDI! Þið sem eruð yfirlýstir fylgjendur mannréttinda og jafnréttis og farið með því fororði fyrir þjóðinni ættuð ekki að láta hjá liggja að láta til ykkar taka og kalla á tafarlausar lagabreytingar sem tryggja almannahag. Katrín Jakobsdóttir og Áslaug Arna, þið farið fyrir ríkisstjórn Íslands. Ríkisstjórn sem lifir í vellystingum, við sældarkjör. Þið eruð foreldrar, fólk, sem gleðst yfir að geta boðið börnum ykkar upp á þau allrabestu hugsanlegu lífsskilyrði, menntun og atlæti sem völ er á. Hvernig getið þið boðið þessum litlu börnum og foreldrum þeirra upp á framtíð heilsuleysis, vanlíðunar, menntunarskorts, heimilisleysis, sársauka og örvæntingar, allt í krafti valds ykkar? Líf við hryllilegan aðbúnað þar sem brotið er á mannréttindum þeirra hvern einasta dag. Með því brjótið þið lög og hafið að engu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem ríkisstjórn þessa lands hefur sjálf samþykkt og lögfest! Þið ráðakonur, berið, sem manneskjur, ævilangt ábyrgð á afleiðingunum ef þessar brottvísanir ná fram að ganga. Það verður þung byrði að bera. Ég þori að fullyrða að fáir þegnar þessa lands hafa brjóst í sér til að reka þessa fjölskyldur eða aðrar í burtu í slíkar aðstæður og engum er áfram um að snúa lífi þessara barna eða annarra upp í allsherjar martröð. Eina fólkið sem virðist vilja börnin burt eruð þið, yfirvöld, og ég segi ykkur það satt að við almenningur, við skiljum það ekki og það sem er enn mikilvægara: VIÐ VILJUM ÞAÐ EKKI. Ég skora á ykkur að standa í lappirnar og beita ykkur af alefli í þágu mannréttinda allra þessara barna og fjölskyldna þeirra. Þau óska sér að eiga hér heima. Þau eru velkomin hingað. Þau eiga alla heimsins hamingju skilið. Ef kennitöluleysi sviptir þau réttindum sínum hér, til grundvallar mannréttinda sem við hin njótum, þá, útvegið þeim kennitölu strax í dag. Magga Stína Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hælisleitendur Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun